Guðrún sér ekki eftir því að hafa þverneitað að ræða við Ron Jeremy Jakob Bjarnar skrifar 24. júní 2020 11:53 Ron Jeremy klámmyndaleikari mætti til Íslands árið 2002. Gríðarlega athygli vakti þegar Guðrún Gunnarsdóttir neitaði að taka viðtal við manninn. Það dæmdist á Snorra Má að ræða við Ron Jeremy og það gerði hann með óbragð í munni.
Ron Jeremy klámmyndaleikari, sem nú hefur af saksóknurum í Bandaríkjunum verið ákærður fyrir að hafa nauðgað þremur konum og ráðist á þá fjórðu, kom til Íslands árið 2002. Þetta var í tengslum við heimildarmynd sem gerð hafi verið um „líf hans og störf“ eins og það var orðað. Almennt og heilt yfir var honum tekið með kostum og kynjum. Nánast eins og þjóðhöfðingi væri á ferð. Þó ekki af öllum. Guðrún Gunnarsdóttir útvarpsmaður, sem þá starfaði sem sjónvarpsmaður á Stöð 2, þverneitaði að taka viðtal við manninn þegar það kom óvænt á borð hennar. Fannst þetta bara ekki í lagi Samstarfsmaður Guðrúnar, en þau höfðu umsjón með Íslandi í dag sem var beintengd fréttastofu Stöðvar 2, var Snorri Már Skúlason og það kom í hans hlut að ræða við Ron Jeremy. „Ég vildi ekki taka viðtal við manninn af því að ég … vildi það ekki,“ segir Guðrún í samtali við Vísi og hlær. Hún segir að það hafi hreinlega strítt gegn allri hennar sannfæringu og siðferðisviðmiðunum. Guðrún Gunnarsdóttir ásamt samstarfsmanni sínum Gunnari Hanssyni á Rás 1. Það stríddi gegn samvisku hennar að taka viðtal við Ron Jeremy á sínum tíma og hún sér ekki eftir þeirri ákvörðun sinni.Samtónn /Ásta Kristjánsdóttir „Mér fannst fáránlegt að vera að hampa einhverjum klámmyndaleikara í svona þætti. Og nú er ég ekki að segja að tilgangurinn hafi verið að hampa honum en á þessum tíma þótti eðlilegt að taka viðtal við manninn. Ég var bara mótfallin því. Ég vildi ekki vera í þeim sporum. Mér fannst það alveg súrrealískt,“ segir Guðrún sem rifjar upp þetta atvik sem kom upp fyrir heilum 18 árum. Hún segir að hann hafi farið víða við kynningu á myndinni, farið í einhverja framhaldsskóla og setið þar fyrir svörum. „Mér fannst þetta bara ekki í lagi.“ Gríðarlega umdeild ákvörðun Guðrúnar Guðrún segir að þessi afstaða hennar hafi ekki verið sett fram sem nein yfirlýsing af hennar hálfu. Það hafi bara komið fram í viðtalinu og það sem slíkt vakti gríðarlega athygli. Sem segir sína sögu. „Ég held að tímarnir hafi sem betur fer breyst,“ segir Guðrún sem telur ákvörðun hennar hafi elst ágætlega. „En ég tók mér þann rétt að vera ekki með í viðtali sem ég vildi ekki vera með í. Það var alveg samþykkt. Það er ekki hægt að pína mann til að vera í einhverju viðtali sem maður vill ekki vera með í.“ Arnar Eggert Thoroddsen blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við „kappann“ og birtist viðtalið 24. október 2002. Þar lýsir Arnar Eggert honum sem „búlduleitum vinnuþjarki“ en fram kemur að hann muni vera á ferð og flugi á Íslandi. Jeremy svari spurningum úr sal eftir sýningu myndarinnar „Pornstar: The Legend of Ron Jeremy. „Þá verður hann með miðnæturuppistand á föstudagskvöldinu ásamt Jóni Gnarr og Pétri „Ding Dong“ Sigfússyni. Á laugardagskvöld verða svo tónleikar með XXX Rotweiler þar sem Jeremy kemur einnig fram.“ Og við eftirgrennslan á tímarit.is og með googli má sjá að það eru engar ýkjur, afstaða Guðrúnar vakti mikla athygli. En hún hlaut einnig hrós og meira að segja viðurkenningu vegna þessarar ákvörðunar. Urðu nokkur blaðaskrif um málið sem var ekki síst umdeilt meðal blaðamanna. Guðrún varð fyrir aðkasti og kölluð tepra Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður var í hópi þeirra sem voru gagnrýnir á afstöðu Guðrúnar og það að hún hefði fengið sérstaka viðurkenningu fyrir að neita að taka viðtal. Sigmar skrifaði grein í Morgunblaðið af þessu tilefni undir fyrirsögninni: „Viðurkenningarvæðing í fréttum“. Sigmar segir að flestir fréttamenn hafi séð fréttefni í þessum manni. „Meira að segja Morgunblaðið tók viðtal við Ron Jeremy. Varð Morgunblaðið við það þátttakandi í klámvæðingu? Mogginn!!! Þessi sanni boðberi kristilegs siðferðis…“ Sigmar taldi vitleysuna hafa náð áður óþekktum hæðum. „Ég var krafin svara og varð fyrir aðkasti fyrir þessa afstöðu mína. Sem er sérstakt,“ segir Guðrún. „Ég man enn eftir því. Fór í einhver viðtöl vegna þessa: „Hvað er að þér?“ Maður var kölluð tepra og allt þetta: Hvaða voða viðkvæmni og bla bla, í þessum dúr. Hvað væri að mér að vilja ekki taka viðtal við þennan mann.“ Guðrún segist ekki sjá eftir ákvörðun sinni og stendur við hana enn þann dag í dag. „Ég hef aldrei séð eftir þessu.“ Ræddi með óbragð í munni við Ron Jeremy Það féll því í hlut Snorra Más að ræða við þennan einkennilega og umdeilda mann sem gerði það að æfistarfi sínu að leika í klámmyndum og er nú í haldi ákærður fyrir nauðgun. Snorri Már segir að á dauða sínum hafi hann átt von en ekki því að þurfa að svara fyrir þetta viðtal átján árum síðar. Hann segist ekki muna mikið eftir viðtali efnislega. En þó því að hann hafi verið afar krítískur. Snorri Már segist hafa virt afstöðu Guðrúnar enda hafi hann haft svipaða tilfinningu og hún gagnvart þessu verkefni.visir/vilhelm „Já, ég reyndi að vera krítískur á hann og þennan iðnað. Sem var hans veruleiki og honum fannst sjálfsagðasti hlutur í heimi. Ég fór með krítískt hugarfar í þetta viðtal, ekki síst vegna þess að samstarfskonan neitaði að vera með í viðtalinu,“ segir Snorri Már. Hann segist hafa virt ákvörðun Guðrúnar og hafi haft mjög svipaða tilfinningu fyrir þessu verkefni. „Ég man að ég var krítískur á þennan klámiðnað sem hann stóð fyrir, eða var að tala fyrir. Og normalisera. Hann var í þeim gír. Ég reyndi að standa á móti eins og fréttamenn reyna að vera, að vera krítískir einkum á umdeilda menn sem þessi maður var vissulega.“ Ekki stoltur af spjalli sínu við klámhundinn Snorra rekur ekki minni til þess að hafa haft neitt af Ron Jeremy að segja, hann kom í húsið þar sem Stöð 2 og fjöldi útvarpsstöðva höfðu bækistöðvar sínar. Mætti í viðtalið og var farinn. Þetta kom óvænt upp, Snorri Már var hluti af fréttastofunni og það kom í hans hlut að ræða við manninn. Þetta sé einkennileg staða að vera í sem blaðamaður að ræða við einhvern þann sem maður hefur jafnvel óbeit á. Snorri Már segist svo sem ekkert stoltur af því að hafa rætt við þennan klámhund þarna fyrir 18 árum. „Mig langaði ekkert til að taka þetta viðtal, en maður var í þessu starfi. Stundum þarf að gera fleira en gott þykir. Smá óbragð en þetta var vinnan mín og stundum fær maður verkefni sem maður er ekkert endilega dús við,“ segir Snorri Már.
Einu sinni var... Fjölmiðlar Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Fleiri fréttir Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Sjá meira