Viðskipti innlent

Herdís og Davíð nýir framkvæmdastjórar hjá Tryggingastofnun

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Herdís Gunnarsdóttir og Davíð Ólafur Ingimarsson.
Herdís Gunnarsdóttir og Davíð Ólafur Ingimarsson. Svenna Speight

Tryggingastofnun réð nýverið tvo framkvæmdastjóra til starfa, þau Herdísi Gunnarsdóttur sem framkvæmdastjóra réttindasviðs og Davíð Ólaf Ingimarsson sem framkvæmdastjóra rekstrarsviðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tryggingastofnun.

Herdís var forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2014 – 2019 og á árunum 2001-2014 starfaði hún á Landspítala m.a. sem klínískur verkefnastjóri á sviði upplýsingatækni og á þróunarskrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar.

Þá var Herdís mannauðs- og gæðastjóri hjá Barnaspítala Hringsins og hjúkrunardeildarstjóri á barnaskurðdeild, lyflækningadeild og dagdeild barna á Landspítala. Að auki hefur hún mikla reynslu af stjórnarstörfum á vettvangi félagasamtaka, stéttarfélaga, lífeyrissjóða, banka og í Evrópusamstarfi. Má þar nefna að hún var um tíma stjórnarformaður Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga og situr nú í varastjórn Íslandsbanka. Herdís er með BSc-próf í hjúkrunarfræði frá HÍ og MSc-próf í barnahjúkrun. Árið 2009 lauk hún MBA prófi frá HÍ.

Herdís tekur við framkvæmdastjórastöðu réttindasviðs Tryggingastofnunar. Um er ræða nýtt svið innan stofnunarinnar sem sameinar lífeyrissvið og færnisvið en þar starfa um 60 manns. Helstu verkefni réttindasviðs eru þjónusta við viðskiptavini, afgreiðsla umsókna, ákvörðun réttinda og stjórnsýslumál.

Davíð Ólafur Ingimarsson tekur svo við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Tryggingastofnunar. Helstu verkefni rekstarsviðs eru fjárhagsgreiningar, bókhald, útgreiðslur, innheimta og eftirlit, skjalastjórnun, póstmiðstöð, rekstur húsnæðis og almenn símsvörun.

Davíð hefur umtalsverða fjármála og stjórnunarreynslu úr orku- og hugbúnaðargeiranum. Á árunum 2007-2015 starfaði hann sem yfirmaður lánamála og sjóðastýringar hjá Landsvirkjun. Þá starfaði hann sem fjármálastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Greenqloud 2015-2017.

Frá árinu 2017, þangað til hann hóf störf hjá Tryggingastofnun, starfaði hann m.a. sem forstjóri Guide to Iceland. Að auki hefur hann setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og var yfir tíu ár stundakennari við Háskóla Ísland. Davíð er með B.Sc. og M.Sc. próf í hagfræði, M.Sc. próf í fjármálum fyrirtækja og er löggiltur verðbréfamiðlari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×