PSG er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á Dortmund í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Dortmund og Frakkarnir þurfti því sigur í síðari leiknum í kvöld. Kylian Mbappe mátti sætta sig við það að byrja á bekknum en hann hefur verið veikur að undanförnu.
Neymar kom PSG yfir á 28. mínútu er hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu og á síðustu mínútu fyrri hálfleiks tvöfaldaði Juan Bernat forystuna eftir laglegt samspil.
Dortmund gerðu allt hvað þeir gátu til þess að jafna metin en allt sauð upp úr á 90. mínútu. Neymar og Emre Can lentu þá saman sem endaði með því að Neymar féll og Emre Can fékk að líta rauða spjaldið.
PSG komið áfram í 8-liða úrslitin en Dortmund situr eftir með sárt ennið.