Íslensku hljóðbókarverðlaunin afhent á föstudag Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 20. maí 2020 16:00 Á íslensku hljóðbókaverðlaununum verða rithöfundar og lesarar verðlaunaðir. Mynd/Storytel Awards
Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Storytel awards fara fram í fyrsta sinn í Hörpu næstkomandi föstudagskvöld 22. maí. Streymt verður frá afhendingunni í beinni útsendingu á Vísi klukkan 20:00. Tilnefndar eru 20 hljóðbækur í alls fjórum flokkum en þeir eru almennar bækur, barna- og ungmennabækur, glæpasögur og skáldsögur. Til stóð að verðlaunahátíðin yrði haldin í apríl en vegna Covid-19 var henni slegið á frest í um mánaðartíma. „Við ræddum það í okkar hópi að fella jafnvel viðburðinn niður í ljósi aðstæðna. En eftir því sem sólin hækkaði og smitum fækkaði þótti okkur rétt að setja punktinn við frábært hljóðbókaár 2019 hér og horfa fram á veginn. Okkur þótti ekki síður mikilvægt að leggja okkar af mörkum og styðja starfsstéttir sem hafa orðið fyrir nánast algjöru tekjufalli í tvo mánuði. Við vinnum til að mynda mikið með leikurum og sviðslistafólki og vildum sýna því og öðrum sem koma að viðburðahaldi stuðning í verki,“ segir Stefán Hjörleifsson, landsstjóri Storytel á Íslandi. Á hátíðinni mun Lilja B. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra ávarpa gesti og afhenda verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka. Frú Eliza Reid mun afhenda sérstök heiðursverðlaunfyrir frumkvöðlastarf í þágu hljóðbókmennta. Verðlaunagripurinnsem sigurvegarar hljóta er glæsilegt glerlistaverk eftir sænska listamanninn Ludvig Löfgren. Tilnefndar bækur fóru fyrir fagdómnefndir undir forystu Einars Kárasonar rithöfundar, Elvu Óskar Ólafsdóttur leikkonu og Sævars Helga Bragasonar en dómnefndir höfðu það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk þar sem vandaður lestur á góðu ritverki getur bætt miklu við upplifun lesandans. Því verða ekki aðeins rithöfundar verðlaunaðir heldur einnig lesarar hljóðbókanna og meðal tilnefndra lesara í ár er fjöldi landsþekktra leikara sem ljáð hafa sögupersónum rödd sína á undangengnu ári. „Árið 2019 var einstaklega gjöfult hljóðbókaár og komu út á fimmta hundrað hljóðbóka á Íslandi sem endurspeglar þá miklu grósku sem ríkir í hljóðbóka- og hlaðvarpsheiminum um þessar mundir,“ segir í tilkynningu um tilnefningarnar. Eftirfarandi rithöfundar, þýðendur og lesarar hljóta tilnefningu fyrir verk sín til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards: Barna- og ungmennabækur ·Nýr heimur – ævintýri Esju í borginni eftir Sverri Björnsson í lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur ·Vetrargestir eftir Tómas Zoëga í lestri Sölku Sólar Eyfeld ·(lang) Elstur í leynifélaginu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur í lestri Sigríðar Lárettu Jónsdóttur ·Litlu álfarnir og flóðið mikla eftir Tove Jansson, í þýðingu Þórdísar Gísladóttur og lestri Friðriks Erlingssonar ·Harry Potter og blendingsprinsinn eftir J.K. Rowling, í þýðingu Helgu Haraldsdóttur og lestri Jóhanns Sigurðarsonar Glæpasögur ·Brúðan eftir Yrsu Sigurðardóttur í lestri Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar ·Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur í lestri Írisar Tönju Flygenring ·Gullbúrið eftir Camillu Läckberg, í þýðingu Sigurðar Salvarssonar og lestri Þórunnar Ernu Clausen ·Búriðeftir Lilju Sigurðardóttur í lestri Elínar Gunnarsdóttur ·Þorpið eftir Ragnar Jónasson í lestri Írisar Tönju Flygenring Skáldsögur ·Kópavogskrónika eftir Kamillu Einarsdóttur í lestri Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur ·Svikarinn eftir Lilju Magnúsdóttur í lestri Þórunnar Ernu Clausen ·Gríma eftir Benný Sif Ísleifsdóttur í lestri Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur ·Flórída eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur í lestri höfundar ·Fjöllin eftir Söndru B. Clausen í lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur Almennar bækur ·Vertu úlfur: wargus esto eftir Héðinn Unnsteinsson í lestri Hjálmars Hjálmarssonar ·Á eigin skinni eftir Sölva Tryggvason í lestri höfundar ·Ég gefst aldrei upp eftir Borghildi Guðmundsdóttur í lestri Lilju Katrínar Gunnarsdóttur ·Geðveikt með köflum eftir Sigurstein Másson í lestri höfundar ·Hornauga eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur í lestri höfundar og Þórunnar Hjartardóttur
Bókmenntir Mest lesið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Lífið „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Lífið Fleiri fréttir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Sjá meira