Innlent

Hættur við forsetaframboð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Magnús Ingberg Jónsson.
Magnús Ingberg Jónsson.

Magnús Ingberg Jónsson, verktaki og forsetaframbjóðandi, er hættur við forsetaframboð sitt. Þetta staðfestir hann í samtali við Vísi en Fréttablaðið greindi fyrst frá í dag.

„Það virðist ekki vera að þessi rafræna söfnun gangi upp fyrir þá sem eru ekki þjóðþekktir,“ segir Magnús. Hann kveðst í raun ekki hafa staðið í virku framboði og hafi ekki safnað undirskriftum upp á gamla mátann líkt og hann gerði þegar hann bauð sig fram í síðustu forsetakosningum árið 2016.

„Síðast var ég að safna upp undir 150 á dag. En þetta er ekkert nálægt því. Ég ætlaði að láta reyna á þessa netsöfnun en hún virðist ekki virka. Þannig að ég leit svo á að þessu væri bara sjálfhætt.“

Magnús er fimmtugur fimm barna faðir búsettur á Selfossi. Hann er verktaki sem gerir út malarnámu með reynslu úr ferðaþjónustu og menntaður fiskeldisfræðingur. Líkt og áður segir bauð hann sig einnig fram til forseta fyrir fjórum árum en náði ekki nauðsynlegum undirskriftafjölda.

Guðni Th. Jóhannesson, sem gegnt hefur forsetaembættinu síðustu fjögur ár, sækist eftir endurkjöri nú en auk hans og Magnúsar eru einnig í framboði þeir Arngrímur Friðrik Pálmason, Axel Pétur Axelsson, Guðmundur Franklín Jónsson og Kristján Örn Elíasson.

Guðni safnaði tilskildum undirskriftum á klukkustund daginn sem hann tilkynnti um framboð sitt. RÚV greindi svo frá því í gær að Guðni og Guðmundur Franklín Jónsson hefðu báðir skilað inn meðmælendalistum til yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi vegna forsetaframboða sinna. 

Undirskriftasöfnun í ár er rafræn í fyrsta skipti vegna kórónuveirufaraldursins. Forsetakosningar fara fram laugardaginn 27. júní næstkomandi.


Tengdar fréttir

Karlarnir fimm sem vilja taka slaginn við Guðna

Arngrímur Friðrik Pálmason, Axel Pétur Axelsson, Guðmundur Franklín Jónsson Kristján Örn Elíasson og Magnús Ingiberg Jónsson. Þetta eru þeir fimm sem standa nú í undirskriftasöfnun til að geta boðið fram krafta sína til embættis forseta Íslands næstu fjögur árin.

Tveir bætast í baráttuna um Bessastaði

Nú hafa tveir karlmenn bæst við hóp þeirra sem sækjast eftir kjöri til embættis Forseta Íslands í forsetakosningunum sem fram fara í júní, að því gefnu að fleiri nái tilskyldum fjölda meðmælenda en núverandi forseti, Guðni Th. Jóhannesson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×