Viðskipti innlent

Huginn vill halda kröfunni til streitu en Vinnslustöðin fundar síðdegis

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Aðsend

Fimm útgerðir af sjö sem stóðu að málsókn á hendur íslenska ríkinu vegna úthlutun makrílaflaheimilda ákváðu í gær að falla frá henni. Útgerðirnar tvær sem eftir standa ráða nú ráðum sínum.

Sjávarútvegsfyrirtækin fimm sem ákváðu í gær að falla frá málsókninni eru Eskja, Gjögur, Ísfélag Vestmannaeyja, Loðnuvinnslan og Skinney-Þinganesvegstaka. Í tilkynningu frá félögunum í gær vísa þau í áhrif kórónuveirufaraldursins á ríkissjóð og íslenskt samfélag sem ástæðu að baki ákvörðun sinni.

Huginn ehf. og Vinnslustöðin hf. eiga enn aðild að málsókninni á hendur ríkinu þar sem útgerðirnar sjö kröfðust alls 10,2 milljarða króna bóta. Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir í samtali við fréttastofu að stjórn fyrirtækisins muni funda um málið klukkan fjögur í dag. Hann gerir þó ekki ráð fyrir að tilkynnt verði um ákvörðunina fyrr en á morgun.

„Það er auðvitað þannig að við höllumst í aðra hvora áttina en við þurfum að ræða öll sjónarmið í báðar áttir og það er bara skynsamlegt að gera það,“ segir Sigurgeir.

Fréttastofa hefur ekki náð í Pál Guðmundsson, framkvæmdastjóra Hugins, en hann segir í samtali við Stundina í morgun að hann sé enn á þeirri skoðun að útgerðin eigi að sækja áfram skaðabætur til ríkisins - en bendir á að hann ráði því þó auðvitað ekki einn.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, skoraði á útgerðirnar að draga kröfur sínar til baka á Alþingi í fyrradag. Útgerðarfélögin höfðuðu málið á hendur ríkinu vegna tjóns sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna rangrar úthlutunar makrílkvóta frá árinu 2011 til 2018.


Tengdar fréttir

Segir ummæli fjármálaráðherra ekki ganga upp í réttarríki

Stjórn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hefur hingað til verið einhuga um að halda til streitu kröfu um bætur vegna úthlutunar veiðiheimilda á makríl. Horft verði þó til orða forsætisráðherra en stjórn fundar um málið á morgun.

Fimm útgerðir falla frá málsókn um skaðabætur

Sjávarútvegsfyrirtækin Eskja, Gjögur, Ísfélag Vestmannaeyja, Loðnuvinnslan og Skinney-Þinganes hafa ákveðið að falla frá málsókn á hendur íslenska ríkinu vegna meints fjártjóns við úthlutum aflaheimilda í makríl fyrr á þessum áratugi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×