Boða til mótmæla á Austurvelli vegna Samherjamálsins Lillý Valgerður Pétursdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 20. nóvember 2019 11:18 Þorsteinn Már Baldvinsson hætti tímabundið sem forstjóri Samherja í liðinni viku í skugga Samherjaskjalanna sem afhjúpuðu starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Nú hefur verið blásið til mótmæla vegna málsins. Vísir/sigurjón
Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli á laugardaginn klukkan 14:00 undir yfirskriftinni Lýðræði ekki auðræði – Auðlindirnar í okkar hendur! Á Facebook-síðu viðburðarins er vísað til Samherjamálsins svokallaða og starfsemi fyrirtækisins í Namibíu þar sem talið er að Samherji hafi greitt namibískum embættismönnum mútur gegn því að fá kvóta. Þá leikur grunur á peningaþvætti og skattaundanskotum. „Almenningur í Namibíu er rændur af íslenskri stórútgerð. Almenningur á Íslandi er rændur af íslenskri stórútgerð sem vílar ekki fyrir sér að beita mútum. Auðlindaránið er framið í skjóli úreltrar stjórnarskrár, efnahagskerfis sem setur ofurvald í hendur auðstéttar og stjórnmálastéttar sem stendur auðsveip frammi fyrir sérhagsmunum fárra og valdamikilla útgerða - stjórnmálastéttar sem ver ekki hagsmuni almennings,“ segir á Facebook-síðu mótmælanna. Er þess meðal annars krafist að Ísland fái nýja stjórnarskrá og að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, segi tafarlaust af sér. Hann sat í stjórn Samherja fyrir tæpum tveimur áratugum og er góður vinur Þorsteins Más Baldvinssonar, eins stærsta eiganda Samherja, sem steig tímabundið til hliðar sem forstjóri fyrirtækisins eftir að hulunni var svipt af starfseminni í Namibíu.„Það skal enginn reyna að halda því fram að það sé bara spilling í Namibíu og ekki á Íslandi“ Á meðal þeirra sem standa að mótmælunum er Stjórnarskrárfélagið. Katrín Oddsdóttir, mannréttindalögfræðingur og formaður Stjórnarskrárfélagsins, segir þátt Kveiks um Samherjamálið hafa sett allt í samhengi hér Íslandi um það hvernig staðan er. „Við erum mjög lengi búin að búa við mjög óréttlátt kerfi hvað varðar auðlindanotkun á þessu landi og við erum lengi búin að búa við þá staðreynd að það er hunsuð þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá. Þessi mótmæli eru í raun og veru tilraun til þess að gera eitthvað í þessu stóra máli. Að ná kerfislægum breytingum á Íslandi til þess að geta búið til réttlátara og betra samfélag hér með minni spillingu og minna arðrán,“ segir Katrín. Aðspurð hvort hún finni fyrir hita í fólki út af Samherjamálinu segir Katrín: „Já, það er mikill hiti í fólki og það er mjög skiljanlegt. Þetta sýnir okkur innsýn inn í einhverja mynd sem er algjörlega hræðileg og það skal enginn reyna að halda því fram að það sé bara spilling í Namibíu og ekki á Íslandi, það er bara ekki þannig. Við sem samfélag getum alveg tekið á þessu en við verðum þá líka að fá valdhafa sem hlusta á kröfur fólksins.“En hvernig mun ný stjórnarskrá nýtast í þessari baráttu? „Hún tryggir að auðlindirnar séu þjóðareign og að þær séu nýttar með sjálfbærum hætti og að þjóðin fái réttlátan hluta af auðlindunum og auðlindanýtingunni. Það er til dæmis sagt í auðlindaákvæðinu í nýju stjórnarskránni að það skuli koma fullt verð fyrir það að hagnýta auðlindirnar, sem þýðir markaðsverð sem þýðir þá að það er ekki hægt að gefa lengur kvótann til að einhverjir örfáir vinir einhverra flokka eða afla hagnist óheyrilega á meðan allt okkar sameiginlega kerfi líður fjárskort,“ segir Katrín.
Reykjavík Samherjaskjölin Tengdar fréttir Ríkisstjórn kynnir aðgerðir vegna Samherjamálsins: Verjast mútum, hagsmunaárekstrum og auka gagnsæi stærri fyrirtækja Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að grípa til aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi. Um er að ræða viðbrögð í kjölfar Samherjamálsins. 19. nóvember 2019 12:02 Þrjár sárar minningar og ein tillaga Þegar ég var sumarstarfsmaður hjá Landsbankanum árið 2007 og bankastjóri notaði eitt hádegið til að kynna nýja vöru bankans sem var IceSave innlánsreikningarnir frægu. 20. nóvember 2019 10:00 Samherjamálið og vantraust hefur áhrif á kjaraviðræður Brátt hefjast kjaraviðræður á milli Sjómannasambandsins og SFS en núverandi kjarasamningar renna út um næstu mánaðamót. Formaður Sjómannasambandsins segir Samherjamálið og vantraust á milli sjómanna og útgerðar hafi áhrif á viðræðurnar. 20. nóvember 2019 06:00 Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Fleiri fréttir Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ Sjá meira
Ríkisstjórn kynnir aðgerðir vegna Samherjamálsins: Verjast mútum, hagsmunaárekstrum og auka gagnsæi stærri fyrirtækja Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að grípa til aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi. Um er að ræða viðbrögð í kjölfar Samherjamálsins. 19. nóvember 2019 12:02
Þrjár sárar minningar og ein tillaga Þegar ég var sumarstarfsmaður hjá Landsbankanum árið 2007 og bankastjóri notaði eitt hádegið til að kynna nýja vöru bankans sem var IceSave innlánsreikningarnir frægu. 20. nóvember 2019 10:00
Samherjamálið og vantraust hefur áhrif á kjaraviðræður Brátt hefjast kjaraviðræður á milli Sjómannasambandsins og SFS en núverandi kjarasamningar renna út um næstu mánaðamót. Formaður Sjómannasambandsins segir Samherjamálið og vantraust á milli sjómanna og útgerðar hafi áhrif á viðræðurnar. 20. nóvember 2019 06:00