Boeing 737 MAX-þotur Air Astana verða notaðar hjá dótturfélaginu Fly Arystan.Mynd/Boeing.
Boeing-verksmiðjurnar hafa á flugsýningunni í Dubai síðustu daga fengið pantanir í smíði á samtals fimmtíu 737 MAX-þotum, þrátt fyrir að vélarnar hafi verið kyrrsettar undanfarna átta mánuði. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Dubai-flugsýningin er ein helsta kaupstefna flugiðnaðarins og þar keppast risarnir Airbus og Boeing um hylli flugfélaga. Þegar kemur að stærsta einstaka samningnum hefur Airbus vinninginn, með tvöþúsund milljarða króna sölu á fimmtíu Airbus A350 breiðþotum til Emirates-flugfélagsins í Dubai.
Boeing glímir á sama tíma við skaddað orðspor og hefur lagt höfuðáherslu á að endurvinna traust flugfélaga og almennings á MAX þotunum.
Ráðamenn Boeing og Air Astana í Dubai eftir undirritun viljayfirlýsingar um þrjátíu Boeing 737 MAX-þotur.Mynd/AFP.Bandaríska flugvélaframleiðandanum þykir hafa orðið nokkuð ágengt í Dubai því þar var tilkynnt um pantanir á alls fimmtíu MAX-þotum, - vélum sem hafa sætt flugbanni frá því í mars. Flestar, eða þrjátíu þotur, pantaði Air Astana flugfélagið í Kasakstan, og tyrkneska flugfélagið SunExpress keypti tíu.
Ráðamenn Boeing gátu þó ekki gefið út neina tímasetningu um hvenær Maxarnir flygju á ný.
Tveimur Boeing 737 MAX-vélum Icelandair var flogið frá Íslandi í dag til vetrargeymslu á Spáni. Þetta var í fyrsta sinn frá kyrrsetningu MAX-vélanna fyrir sjö mánuðum að vélar þessarar tegundar frá Icelandair tóku á loft.
Yfirmenn hjá bandarísku flugfélögunum United Airlines, American Airlines og Southwest ráðgera að fljúga sjálfir með annars farþegalausum Boeing 737 MAX vélunum eftir að flugmálayfirvöld hafa aflétt flugbanni á vélunum.
Fjórar Boeing 737 MAX 8-þotur Icelandair hafa núna verið ferjaðar frá Keflavíkurflugvelli til borgarinnar Lleida í Katalóníu, um 160 kílómetra vestnorðvestur af Barcelona.
Tvær Boeing 737 MAX-vélar Icelandair flugu frá Keflavíkurflugvelli í morgun áleiðis til Spánar. Þetta var í fyrsta sinn frá kyrrsetningu MAX-vélanna um heim allan fyrir sjö mánuðum að vélar þessarar tegundar frá Icelandair tóku á loft.
Icelandair hefur uppfært flugáætlun sína í janúar og febrúar á næsta ári. Félagið gerir ekki ráð fyrir að Boeing 737 MAX flugvélar verði komnar aftur í rekstur fyrr en í lok febrúar 2020.