Ætlun Trumps sé að vekja ótta hjá þeim sem hyggjast bera vitni Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 15. nóvember 2019 18:48 Yovanovitch segir að Trump hefði í maí bolað sér úr embætti. Vísir/AP
Opinberar vitnaleiðslur rannsóknar Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, standa nú yfir en í dag bar Marie Yovanovitch, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu vitni. Yovanovitch segir að Trump hefði í maí bolað sér úr embætti fyrir að hafa reynt að telja Rudy Giuliani, lögmann Trumps, af því að biðja úkraínsk yfirvöld um aðstoð við að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing Trumps. Henni var skyndilega vikið úr embætti í maí en rétt áður hafði hún verið fengin til að sitja áfram sem sendiherra í Kænugarði. Í minnisblaði sem Hvíta húsið birti um umdeilt símtal Trumps og Zelenskíj, forseta Úkraínu, frá því í júlí kom fram að Trump kallaði Yovanovitchvandræðagemsa sem ætti eftir að "lenda í ýmsu" eins og hann komst að orði. Á meðan Yovanovitch bar vitni í dag talaði forsetinn illa um hana í röð tísta. Yovanovitch sagði Trump, með þessu, vera að ógna sér. Adam Schiff, formaður leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildar þingsins ræddi við hana og sagðist líta málið alvarlegum augum. Framferði Trumps hefði engan annan tilgang en að ógna vitni í málinu og að vekja ótta hjá þeim sem hyggjast gera slíkt hið sama.Hér fyrir neðan má sjá stutt brot úr vitnisburði Yovanovitch.
Bandaríkin Donald Trump Ákæruferli þingsins gegn Trump Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira