Eins og að horfa á mann sökkva í kviksyndi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 18. nóvember 2019 18:45
Lögmaður fimm þolenda barnaníðingsins og auðjöfursins Jeffreys Epstein segir að viðtal BBC við Andrés Bretaprins, vin Epsteins, um ásakanir gegn prinsinum hafi verið hamfarakennt. Andrés, sem er hertoginn af Jórvík og sonur Elísbetar Bretlandsdrottningar, er sakaður um að hafa brotið gegn Virginiu Roberts Guiffre þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segir að Epstein, sem lést í fangesi í ágúst síðastliðnum, hafi þvingað sig. Breski prisinn var til viðtals hjá BBC um helgina þar sem hann hafnaði ásökununum alfarið. Viðtalið vakti litla hrifningu og sagði fjölmiðlafulltrúi prinsins af sér í kjölfarið. Lisa Bloom, lögmaður fimm þolenda Epsteins, sagði svo við Sky News í dag að viðtalið við Andrés hafi hreinlega verið hamfarakennt. „Þetta viðtal hjálpaði honum ekki neitt,“ sagði Bloom. Að horfa á viðtalið hafi verið líkt og að fylgjast með manni sökkva í kviksyndi. „Hann virðist ekki hafa neina samúð með þolendunum og hann virðist ekkert sjá eftir vinskap sínum við Jeffrey Epstein. Hann á rétt á því að verja sig, vissulega, og neita ásökununum og ég veit ekki hvað er rétt eða rangt í þessu samhengi. En hann virðist vera með steinhjarta þegar kemur að þolendunum.“
Bandaríkin Bretland Jeffrey Epstein Kóngafólk Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Sjá meira