„Fyrst og fremst verða þetta jólalög en við leyfum okkur einnig að taka eitthvað aðeins annað af því að okkur finnst við vera það snemma á ferðinni. En þetta eru samt jólatónleikar og það verða jólaskreytingar á sviðinu og allt sem bendir til þess að þetta séu jólatónleikar. Við tökum bara smá hliðarspor hér og þar.“
Hann segir að gospelkór Jóns Vídalíns verði með þeim á sviðinu á tónleikunum.
„Við byrjuðum með þetta í fyrra og seldum upp á þrenna tónleika í Háskólabíói þrátt fyrir að hafa varla auglýst. Það var það gaman að okkur langaði til að prófa þetta aftur. Við erum aftur á móti í fyrsta skipti í Hofi núna.“
En hvor þeirra getur sungið hærra?
„Það myndi vera ég,“ segir Eyþór og skellihlær.
„Nei ég veit það ekki. Þetta er svolítið skemmtilegar raddir sem flútta fallega saman. Við getum bæði tekið milda pakkann á þetta en svo er hægt að rífa sig upp í rassgat. Við fáum orku frá hvor öðru á sviðinu og erum að reyna gera eitthvað sem maður ræður varla við. Það skilar sér oft í einhverri bombu.“
Hugmyndin að jólatónleikum þeirra tveggja kviknaði þegar þau komu saman á jólatónleikum Fíladelfíu árið 2014 og voru þeir sýndir á Stöð 2.
Hér að neðan má sjá upptöku af þeim tónleikum þegar þau tóku lagið Hjartað lyftir mér hærra.