Eldur á svölum og vatnsleki milli hæða Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. október 2019 22:15 Tvö útköll bárust slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu með stuttu millibili í kvöld, annað vegna vatnsleka en hitt vegna elds. Vísir/vilhelm
Lið frá tveimur stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds á svölum í Salahverfi í Kópavogi um klukkan hálf tíu í kvöld. Þá var slökkvilið einnig kallað út vegna vatnsleka í Breiðholti í kvöld. Eldurinn kom upp á svölum íbúðarhúss og reyndist hafa kviknað út frá einhvers konar „kertabúnaði“, að sögn varðstjóra, en tjón varð mjög lítið og engan sakaði. Nágrannar tilkynntu um eldinn á níunda tímanum. Þegar á vettvang var komið reyndist um minniháttar atvik að ræða og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Um klukkustund áður, eða um klukkan hálf níu, var slökkvilið kallað út að fjölbýlishúsi í Hólahverfi í Breiðholti vegna vatnsleka, þar sem vatn lak á milli hæða. Slökkviliðsmenn unnu að því í um klukkutíma að hreinsa vatnið upp, skrúfa fyrir vatn í húsinu og koma því svo aftur á. Ekki er talið að mikið tjón hafi orðið vegna lekans.
Kópavogur Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Hætta leitinni í Meradölum Innlent Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Fleiri fréttir Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Sjá meira