Sturla keypti blokk á Ásbrú Björn Þorfinnsson skrifar 17. október 2019 08:00 Sturla Sighvatsson var einn stofnenda leigufélagsins Heimavalla og var framkæmdastjóri þess. Fréttablaðið/Anton
Fjárfestirinn Sturla Sighvatsson keypti 16 íbúða blokk á Ásbrú á síðasta ári. Til þess að fjármagna kaupin fékk Sturla samtals um 190 milljóna króna hagstæð lán frá Íbúðalánasjóði sem aðeins eru ætluð óhagnaðardrifnum leigufélögum. Sturla hefur verið umsvifamikill í margs konar fjárfestingum undanfarin ár. Til marks um það er hann skráður fyrir á þriðja tug einkahlutafélaga. Fréttir af rekstrarerfiðleikum viðskiptaveldis Sturlu hafa verið háværar undanfarna mánuði. Þannig greindi Fréttablaðið frá miklum vandræðum með byggingu blokkar við Gerplustræti 2-4 í síðustu viku en Sturla stýrði verkefninu og átti lítinn hlut í því. Þá fjallaði Stundin um að fjölmargar fasteignir í eigu félaga hans hafi verið auglýstar á nauðungarsölum undanfarin misseri. Sturla var á meðal stofnenda leigufélagsins Heimavalla og var fyrsti framkvæmdastjóri félagsins. Heimavellir keyptu meirihluta eigna sinna af þróunarfélaginu Kadeco á Ásbrú og af Íbúðalánasjóði og að stórum hluta með fjármögnun frá Íbúðalánasjóði. Það má því segja að Sturla hafi fetað troðnar slóðir með persónulegum viðskiptum sínum á Ásbrú. Fasteignin sem um ræðir heitir Grænásbraut 604A og 604B. Kaupverð eignanna var 235,7 milljónir króna og til þess að fjármagna kaupin fékk félag Sturlu, Grænásbraut 604 ehf., 80 prósent lán frá Íbúðalánasjóði, samtals um 190 milljónir króna. Þessi tilteknu lán eru aðeins ætluð óhagnaðardrifnum leigufélögum og þurfa félögin að uppfylla margs konar skilyrði til þess að hljóta lánin. Meðal annars má ekki greiða út arð úr félögunum og launagreiðslur verða að vera hóflegar. Vextir á lánunum eru 4,2 prósent sem er hátt miðað við það sem gerist á markaði. Það sem gerir þó lánin eftirsóknarverð er sú staðreynd að lánshlutfallið er mjög hátt, áðurnefnd 80 prósent af kaupverði. Ólíklegt verður að teljast að lánanefndir hefðbundinna banka myndu vera spenntar fyrir leigufélagsverkefni með svo lágt eiginfjárhlutfall. Þá er lánstíminn til 50 ára og það þýðir að afborganir eru frekar lágar enda dreifast þær yfir langt tímabil. Möguleikinn til að hagnast felst í því að selja félagið í heild sinni á hagstæðum tímapunkti eða greiða upp lánin frá Íbúðalánasjóði, til dæmis með endurfjármögnun frá annarri lánastofnun. Athygli vekur að Heimavellir, undir stjórn Sturlu, sóttu í sams konar lánsfjármögnun frá Íbúðalánasjóði á fyrstu árum leigufélagsins. Þessi fjármögnunarleið hefur valdið leigufélaginu vandræðum eftir að það var skráð á markað og uppfyllti þar með ekki lengur hina óhagnaðardrifnu kröfu Íbúðalánasjóðs. Fjármálaeftirlitið gerði athugasemdir við að útlánin stæðust ekki lengur ákvæði reglugerðar. Afleiðing af því var meðal annars sú að Íbúðalánasjóður hækkaði vexti á lánum um eitt prósent til eins af dótturfélögum Heimavalla á þessu ári. Lánin stóðu þá í um 2,5 milljörðum króna. Sú ákvörðun hefur verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála. Fyrir rúmum mánuði greindi Fréttablaðið frá því að fjárfestirinn Matthías Imsland hefði keypt heila blokk á Akranesi og farið sömu leið og Sturla til þess að fjármagna kaupin. Áður hafði hann keypt tug íbúða í Vestmannaeyjum með sama hætti. Sturla og Matthías hafa átt í nánu viðskiptasambandi undanfarin ár. Þannig eiga þeir saman félagið HV 10 ehf. sem á umdeildar fasteignir við Óðinsgötu. Þessar fasteignir brunnu til kaldra kola um mitt síðasta ár og hafa ítrekað verið auglýstar á nauðungarsölu undanfarna mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Húsnæðismál Reykjanesbær Mest lesið Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Rukkað því fólk hékk í rennunni Neytendur Skype heyrir brátt sögunni til Viðskipti erlent Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Atvinnulíf Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Skilar samkeppnin okkur samkeppnishæfu matarverði? Neytendur Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Fyrrverandi aðstoðarmaður skellir sér aftur í auglýsingarnar Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Skattar á áfengi hæstir á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri Sjá meira