Glæsimark Willian tryggði Chelsea sigur á Lille á útivelli í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Tammy Abraham kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik en Victor Osimhen jafnaði áður en hálfleikurinn var úti. Willian kom Chelsea svo til bjargar á 77. mínútu eftir fyrirgjöf Callum Hudson-Odoi.
Lokatölur urðu 2-1 og er Chelsea í þriðja sæti H-riðils.
Chelsea hefur aðeins náð að halda marki sínu hreinu í einum leik af ellefu undir stjórn Frank Lampard.
Chelsea sótti þrjú stig til Frakklands
