Kona kom á lögreglustöðina í Keflavík í mánudag og tilkynnti að hún hefði verið bitin af hundi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þar segir að konan hafi verið með hund sinn á göngu þegar laus hundur kom aðvífandi og ruku hvuttarnir saman.
Lausi hundurinn beit svo konuna sem leitaði til læknis þar sem bitsárið var saumað og henni gefin stífkrampasprauta.
Hundur beit konu í Keflavík
Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
