Í honum stjórnar Gummi Ben nýjum léttum og skemmtilegum spjallþætti á föstudagskvöldum í allan vetur og verður Sóli Hólm honum til halds og trausts.
Sóli verður t.d. með atriði í hverjum þætti og er um að ræða lið sem kallast Dagskrárkynning en á föstudagskvöldið tók hann fyrir Rikka G og þætti hans Rikki fer til Ameríku. Sóli litaði á sér háríð svart, skellti sér í Ralph Lauren bol og fór út úr bænum.
Það eina sem þessi Rikki vildi ekki var að fara á hestbak eins og lesendur Vísis fengu að sjá á föstudaginn.
Í þættinum voru tvö atriði með Sóla og í seinna atriðinu fór Rikki G í bakarí og fékk að bragða á kleinu. Greinilega enginn smá kleina eins og sjá má hér að neðan. Einnig fékk Ríkharð að prófa að keyra traktor.