Segir ríkið hafna nútímavísindum til þess að „fara sem verst með sakborningana“ Sylvía Hall skrifar 22. september 2019 18:00 Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar. Fréttablaðið/Eyþór
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar sem stefnt hefur ríkinu til greiðslu bóta með dráttarvöxtum upp á 1,3 milljarða króna, segir ríkislögmann ekki vera sjálfstæða stofnun. Ríkisstjórnin hljóti að leggja lögmanninum línurnar í málinu en að sögn Ragnars gengur ríkislögmaður fram með fáheyrðum ákafa í að sýkna ríkið af öllum bótakröfum. Ragnar var gestur Heimis Más Péturssonar í þjóðmálaþættinum Víglínan í dag. Hann segir ríkið hafa viðurkennt bótarétt sakborningana í málinu með því að koma á fót sáttanefnd. Samkomulag um bætur tókst ekki við sakborninga og ættingja við sáttanefnd sem forsætisráðherra skipaði en skipaður ríkislögmaður í málinu hefur lagt fram greinargerð í héraðsdómi. Í greinargerðinni er aðallega stuðst við málatilbúnað í sakamálinu frá 1980 sem Ragnar telur ekki standast þar sem fyrri dómur er fallinn úr gildi eftir að málið var þingfest á ný í Hæstarétti á síðasta ári. Hann segir það vera ljóst að ríkislögmaður ætli sér að leita allra tiltæka leiða til þess ríkið verði sýknað og hafni meðal annars niðurstöðum viðamikilla rannsókna um áhrif fangelsisvistar á saklaust fólk í greinargerð sinni. „Ríkið fer þá leið að hafna öllum nútímavísindum. Það hafnar til að mynda viðteknum niðurstöðum réttarsálfræði nútímans. Ríkið hafnar líka rannsóknum sem fram hafa farið annars staðar í heiminum á afleiðingum fangelsisvistar á fólk sem er saklaust dæmt og seinna sýknað og samkvæmt rannsóknum nær sér aldrei til æviloka. Þessu er öllu hafnað. Öll nútímaþekking skiptir íslenska ríkið engu máli, slík er ákefðin við að reyna að fara sem verst með sakborningana í þessu máli,“ segir Ragnar.Guðjón Skarphéðinsson hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu.VísirSegir forsætisráðherra fara með rangt mál Ragnar segir málið vera lögum samkvæmt á ábyrgð forsætisráðherra og ríkisstjórnarinnar en í fjórtándu grein stjórnarskrárinnar segir að ráðherrar beri ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum. Ríkislögmaður sé ekki sjálfstæð stofnun og málið sé því á ábyrgð ríkisstjórnarinnar, það sé ekki undir ríkislögmanni komið að setja fram kröfur líkt og forsætisráðherra hefur haldið fram. „Þetta er rangt, umboðsmaður Alþingis hefur fjallað um þetta að minnsta kosti tvívegis. Hann hefur gagnrýnt mjög þá sem flytja mál fyrir ríkið fyrir það hvernig þeir koma fram gagnvart borgurunum. Þeir halda að þeir eigi að tjalda öllu til að koma í veg fyrir að borgararnir nái rétti sínum gegn ríkinu,“ segir Ragnar og segir þá lögmenn sem reka mál fyrir ríkið oftar en ekki ganga harðar fram en aðrir lögmenn. „Ég hef enga lögmenn séð ganga jafn langt og þá sem vinna fyrir ríkið að þessu leyti.“Sjá einnig: Svimaði við lestur greinargerðar ríkislögmanns Hann segir það vera pólitíska ákvörðun ef ríkisstjórnin ætlar að breyta um stefnu í málinu. Það sé ekki ákvörðun ríkislögmanns. „Þetta er afar viðkvæmt mál og stórt og hlýtur að verða tekin ákvörðun um það á efstu stigum, sérstaklega ef ríkisstjórnin ákveður að breyta um stefnu og biðst fyrirgefningar, viðurkennir mistök og segir svo allt í einu: Við ætlum ekki að bæta neitt vegna þess að þetta er ekki okkur að kenna, þetta er allt saman fólkinu að kenna sem lenti í fangelsi. Þá þyrfti að rökstyðja það sérstaklega og það er pólitísk ákvörðun, á því ber ríkisstjórnin fullkomlega ábyrgð en ekki Andri Árnason, sem hlýtur auðvitað fyrirmælum ríkisstjórnarinnar í þessu máli.“Getur ekki leikið sér að hagsmunum umbjóðenda sinna Líkt og áður sagði hefur Ragnar stefnt ríkinu til greiðslu bóta með dráttarvöxtum upp á 1,3 milljarða króna. Hann segir kröfuna vera háa en hann hafi einungis eitt dómafordæmi til viðmiðunar og það sé skylda hans sem lögmaður að berjast fyrir rétti skjólstæðinga sinna. „Hún er vissulega há. Ég efast ekkert um það. En hvað á lögmaður að gera sem hefur aðeins eitt fordæmi um samskonar dóm út af samskonar athæfi í sama fangelsi á sama ári? Átti lögmaðurinn að segja við skjólstæðing sinn: „Við skulum ekki taka mark á þessum dómi Hæstaréttar, hann er alltof hagstæður sakborningum og þér þar með, við skulum fara einhverja aðra leið og minnka kröfurnar“. Hann segir það hafa verið nauðsynlegt að gera kröfur í samræmi við þá niðurstöðu sem Hæstiréttur komst að í máli hinna svonefndu „Klúbbsmanna“. „Þetta varð ég að miða við. Ég hef skyldu sem lögmaður, ég get ekki leikið mér að hagsmunum umbjóðenda minna með því að skera þá niður.“
Dómsmál Guðmundar- og Geirfinnsmálin Víglínan Tengdar fréttir Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“ Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu. 20. september 2019 09:10 Svimaði við lestur greinargerðar ríkislögmanns Lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar segir ríkið ekki fylgja reglum hins siðaða samfélags í málsvörn sinni gagnvart kröfum Guðjóns um bætur vegna ólöglegrar frelsissviptingar hans í Geirfinnsmálinu. 20. september 2019 21:00 Misbauð beiðni Erlu Bolladóttur um bætur og hittust í fyrsta skipti í 43 ár Þrír menn sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaðir um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana telja alls ekki réttlætanlegt að greiða Erlu Bolladóttur bætur vegna dóms sem hún hlaut fyrir rangar sakargiftir. 20. september 2019 10:51 Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Sjá meira
Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“ Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu. 20. september 2019 09:10
Svimaði við lestur greinargerðar ríkislögmanns Lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar segir ríkið ekki fylgja reglum hins siðaða samfélags í málsvörn sinni gagnvart kröfum Guðjóns um bætur vegna ólöglegrar frelsissviptingar hans í Geirfinnsmálinu. 20. september 2019 21:00
Misbauð beiðni Erlu Bolladóttur um bætur og hittust í fyrsta skipti í 43 ár Þrír menn sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaðir um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana telja alls ekki réttlætanlegt að greiða Erlu Bolladóttur bætur vegna dóms sem hún hlaut fyrir rangar sakargiftir. 20. september 2019 10:51