Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum, þar sem sagt er að skipulagsbreytingarnar muni hafa jákvæð áhrif á rekstur Arion. Sviðum bankans fækkar um tvö og ýmis verkefni færast til innan bankans með það að markmiði að einfalda starfsemina.
Talið er að uppsagnirnar muni kosta bankann næstum 900 milljónir króna, en að áætlað sé að breytingarnar muni að öðru óbreyttu hafa jákvæð áhrif á afkomu bankans sem nemur um 1,3 milljörðum króna á ársgrundvelli, að teknu tilliti til skatta. Þessara jákvæðu áhrifa muni fyrst gæta fyrstu afkomu næsta árs.
Erfiður dagur
„Þetta verður erfiður dagur en við kveðjum í dag hæft og gott samstarfsfólk sem ég efast ekki um að muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi,“ er haft eftir bankastjóra Arion banka, Benedikt Gíslasyni. Hann sendi starfsmönnum póst í morgun vegna uppsagnanna.Í tilkynningu Arion segir að Vinnumálastofnun hafi verið gert viðvart. Í samtali við Vísi í morgun sagði sviðsstjóri hjá stofnuninni að uppsagnirnar hafi ekki verið komnar inn á þeirra borð fyrir lokun skrifstofunnar í gær. Því megi ætla að þetta hafi verið tilkynnt í nótt eða snemma í morgun.
Þrátt fyrir uppsagnirnar segir í tilkynningu Arion að grunnstefna bankans sé óbreytt og að bankinn muni áfram veita fjármálaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fjárfesta. Meginbreytingin felist í að starfsemi fjárfestingabankasviðs færist á tvö ný svið, annars vegar markaði og hins vegar fyrirtækja- og fjárfestingabankasvið.

Umhverfi fjármálafyrirtækja hefur breyst mikið á undanförnum árum. Íþyngjandi breytingar á regluverki og sköttum á síðastliðnum áratug hafa leitt af sér mikinn viðbótarkostnað. Það er staðreynd að eiginfjárkröfur og skattar á banka hér á landi eru langt umfram það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur og skerða samkeppnisstöðu þeirra.Hann segir að samhliða þessu hafi samkeppni á fjármálamarkaði verið að aukast mikið, t.a.m. fá lífeyrissjóðum, ríkisbönkum, fjártæknifyrirtækjum og minni fjármálafyrirtækjum - „sem lúta um margt öðrum lögmálum en kerfislega mikilvægir bankar.“ Af þeim sökum hafi arðsemi bankans ekki verið nægjanlega góð.
„Með þeim skipulagsbreytingum sem við kynnum í dag erum við að bregðast við aðstæðum til að tryggja að bankinn þjóni sínum viðskiptavinum vel á sama tíma og hann skilar hluthöfum arði. Við byggjum á þeim mikla árangri sem hefur náðst á undanförnum árum á sviði stafrænnar þjónustu og sjálfvirknivæðingar og ætlum okkur áframhaldandi forystuhlutverk í framsækinni fjármálaþjónustu,“ segir Benedikt.
Meðal breytinganna sem kynntar eru í dag fyrrnefnd fækkun sviða auk þess sem tekjusvið bankans verða þrjú: viðskiptabankasvið, fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið og markaðir. Stoðsvið verða einnig þrjú: fjármálasvið, upplýsingatæknisvið og áhættustýring.

Viðbúinn niðurskurður
Starfsmannamál Arion hafa verið til umræðu í vikunni eftir að vefur Mannlífs birti frétt um að uppsagnir gætu verið handan við hornið hjá bankanum. Orðrómur þess efnis á sér þó langan aðdraganda, enda hefur Bendikt lýst yfir hagræðingarvilja allt frá því að hann tók við starfi bankastjóra í byrjun sumars.Það gerði hann til að mynda í pósti til starfsmanna í upphafi júlímánaðar.
Í póstinum sagði Benedikt, sem þá var nýtekinn til starfa, að það væri honum ekkert sérstakt kappsmál að Arion yrði stærsti banki á Íslandi. Mikilvægara væri að bankinn yrði framsækinn og skili hluthöfum arði.
Í yfirlýsingum sínum eftir uppgjör annars ársfjórðungs í upphafi ágústmánaðar tók hann í sama streng. Bankinn myndi „móta áherslur í stefnu og starfsemi bankans til næstu ára svo bankinn sé sem best í stakk búinn til að mæta þeim miklu breytingum sem eru að eiga sér stað á fjármálaþjónustu,“ eins og hann komst að orði.

Benedikt skerpti á þessari sýn sinni í viðtali við Markaðinn fyrr í þessum mánuði. Þar ræddi hann um árangur bankans af „stafrænu vegferð“ sinni og færri heimsóknir í útibú bankans. „Það gefur okkur tækifæri til að hagræða í rekstrinum enda þurfum við að sníða okkur stakk eftir vexti. Ef efnahagsreikningurinn dregst saman þá minnka umsvifin að sama skapi,“ sagði Benedikt.
Ekki fyrstu uppsagnir ársins
Eins og Benedikt rekur í tilkynningu dagsins hefur arðsemi bankans ekki þótt ásættanleg síðastliðin misseri. Þannig var afkoma hans á öðrum ársfjórðungi þessa árs „ekki nógu góð,“ eins og Benedikt komst sjálfur að orði. Á fyrstu sex mánuðum ársins var arðsemin aðeins rúmlega þrjú prósent en á síðustu misserum hefur talsvert útlánatap, einkum vegna United Silicon í Helguvík og gjaldþrots flugfélaganna WOW air og Primera air, sett þar strik í reikninginn. Tap Valitors bætti heldur ekki úr skák, en dótturfélagið tapaði tæplega 3 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Því hafa flestir búist við að einhverra hagræðinga væri að vænta hjá bankanum, sem nú þegar hafa sést í uppsögnum og brotthvarfi framkvæmdastjóra.Þannig fækkaði starfsmönnum bankans um 20 á öðrum ársfjórðungi þessa árs, auk þess sem Jónína S. Lárusdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, og Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs, sögðu skilið við bankann í september. Alls hefur starfsmönnum Arion fækkað um 50 á síðastliðnu ári og er fjöldi stöðugilda hjá bankanum nú um 800.

Breytingar í framkvæmdastjórn
Í tilkynningu Arion í morgun er ný framkvæmdastjórn útlistuð. Auk fyrrnefnds Benedikts er hún svo skipuð: Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs, Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri markaða, Gísli S. Óttarsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar, og Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs.Aukinheldur er greint frá því að þeir Lýður Þór Þorgeirsson og Rúnar Magni Jónsson stigi úr framkvæmdastjórn bankans. Þeir taka hins vegar báðir við nýjum stöðum innan fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs. Lýður Þór mun taka við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar og Rúnar Magni við starfi forstöðumanns á sviði fjármögnunar fyrirtækja. Birna Hlín Káradóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Arion banka og mun stýra lögfræðiráðgjöf á skrifstofu bankastjóra.