Jú, víst
Dominic Cummings er einn umdeildasti maður Bretlands nú um stundir. Cummings var kosningastjóri útgöngusinna í kosningabaráttunni um Brexit og er nú aðalráðgjafi Borisar Johnson. Cummings er maðurinn á bak við eina stærstu lygi kosningabaráttu Brexit-liða, rútu sem ók um með slagorðinu: „Við sendum Evrópusambandinu 350 milljónir punda á viku; fjármögnum heldur heilbrigðiskerfið.“ Upphæðin var uppspuni. En sama hvað gagnrýnendur hrópuðu sig hása og sögðu að þetta væri ekki satt glottu Brexit-liðar bara og svöruðu „jú, víst“.Cummings er yfirlýstur aðdáandi Sun Tzu, kínversks hershöfðingja sem uppi var fimm öldum fyrir Krist og ritaði bókina Hernaðarlistin. Eitt af þeim heilræðum bókarinnar sem Cummings hefur hvað mest dálæti á fjallar um hvernig „vinna má stríðssigur án þess að berjast“ – eða, eins og Cummings útskýrir það í bloggfærslu: „Maður slær óvininn út af laginu með aðgerðum sem rugla hann í ríminu, sýndarárásum, blekkingum.“
Það virkar. Andstæðingar Borisar vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Því augljósari sem lygin er því harðar neitar hann því að hann fari með fleipur. Svart er hvítt og hvítt er svart. Þótt þingið samþykkti lagafrumvarp um að Boris geti ekki dregið Breta samningslausa út úr Evrópusambandinu segir Boris: „Jú, víst.“ Þótt sérfræðingar fullyrtu að Boris gæti ekki frestað þinghaldi og komið þannig í veg fyrir að þingið skipti sér af Brexit sagði Boris: „Jú, víst.“
En í vikunni sagði Hæstiréttur Bretlands: „Hingað og ekki lengra.“ Þingfrestun Borisar var dæmd ólögleg.
Sænsk hippakommúna
Við Íslendingar höfum löngum staðið framarlega þegar kemur að nýjustu tískustraumum. Miðflokkurinn var ekki lengi að tileinka sér aðferðafræði Borisar og Cummings. Nú þegar Orkupakkamálið er frá virðist sem Miðflokkurinn hyggist næst marka sér sérstöðu með því að að afneita því augljósa. Þótt flestir séu sammála um að loftslagsbreytingar séu ein helsta ógn við líf á jörðinni er Miðflokkurinn ekki svo viss. „Við getum ekki brugðist við með því að reyna að lifa eins og í sænskri hippakommúnu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á þingi.Það kemur fáum á óvart að Miðflokkurinn skipi sér í flokk með mönnum eins og Donald Trump. Það sætir hins vegar furðu að þingmaður flokksins, Bergþór Ólason, sé gerður að formanni umhverfisnefndar Alþingis, nefndar sem fer með mál sem varða náttúruvernd og rannsóknir á sviði umhverfismála. Í hernaðarlíkingu í anda Cummings er uppátækið eins og ef Trójumenn hefðu dregið Trójuhestinn inn fyrir borgarhliðið vitandi að hann væri fullur af óvinveittum grískum hermönnum. Var Svarthöfði ekki laus í formannssetuna?