Keppni í Domino's deild karla hefst á fimmtudaginn.
Hitað var upp fyrir tímabilið sem er handan við hornið í upphitunarþætti Domino's Körfuboltakvölds á föstudaginn.
Þar fóru Kjartan Atli Kjartansson og sérfræðingarnir Teitur Örlygsson, Sævar Sævarsson og Kristinn Friðriksson yfir liðin eins og þau koma þeim fyrir sjónir núna og röðuðu þeim í styrkleikaröð.
Einnig var farið yfir sex stærstu félagaskipti sumarsins.
Allan upphitunarþátt Domino's Körfuboltakvölds má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
