Dortmund og Barcelona gerðu markalaust jafntefli í Meistaradeild Evrópu í kvöld þökk sé vítamarkvörslu Marc-Andre ter Stegen.
Heimamenn í Dortmund voru mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik og átti Marco Reus tvö frábær færi sem ter Stegen varði vel auk þess að Reus lét landa sinn verja frá sér vítaspyrnu.
Julian Brandt komst hvað næst því að skora, fyrir utan vítaspyrnuna, þegar hann setti boltann í þverslána seint í leiknum.
Lionel Messi kom inn af varamannabekknum í sínum fyrsta leik fyrir Barcelona á tímabilinu en hann gat ekki galdrað fram sigurmark fyrir Börsunga.
