Auður Árnadóttir hefur verið ráðin nýr fjármálastjóri hjá ORF Líftækni. Auður tekur við starfinu af Júlíusi B. Kristinssyni sem verður nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs fyrirtækisins.
Í tilkynningu frá ORF segir að Auður hafi starfað sem fjármálastjóri í yfir sextán ár, bæði hér á landi og í Bretlandi.
„Síðastliðið ár starfaði Auður hjá Advania Data Centers, þar sem hún leiddi aðskilnað reksturs gagnavera frá Advania Ísland. 2011-2018 starfaði Auður hjá Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, eða frá opnunarári hússins og á meðan rekstri var komið á fót, starfsemin fjármögnuð og skipulögð. Þar áður var Auður fjármálastjóri Geysis Green Energy, sem var með verkefnafélög og samstarfsverkefni víða um heim, og fjármálastjóri samstæðu AT Toolcentre Ltd í Bretlandi. Auður er með MBA og BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni.
ORF Líftækni framleiðir sérvirk prótein sem notuð eru sem innihaldsefni í BIOEFFECT húðvörur fyrirtækisins sem seld eru til læknisfræðilegra rannsókna og nýtt í önnur þróunarverkefni fyrirtækisins. Um sjötíu manns starfa nú hjá fyrirtækinu.
Ráðin nýr fjármálastjóri ORF
Atli Ísleifsson skrifar

Mest lesið


Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi
Viðskipti innlent


Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili
Viðskipti innlent

Landsbankinn við Austurstræti falur
Viðskipti innlent

Sjóvá tapar hálfum milljarði
Viðskipti innlent

Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram
Viðskipti innlent

Hefja flug til Edinborgar og Malaga
Viðskipti innlent

Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags
Viðskipti innlent