Draumur Jóns Guðna Fjólusonar og félaga í Krasnodar um að komast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er afar fjarlægur eftir 4-0 tap fyrir Olympiacos í fyrri leik liðanna í umspili í kvöld.
Jón Guðni var í byrjunarliði Krasnodar og lék allan leikinn.
Miguel Guerrero kom Olympiacos yfir eftir hálftíma leik. Á 78. mínútu bætti Serbinn Lazar Randjelovic öðru marki við. Hann fékk þá boltann frá Frakkanum reynslumikla, Mathieu Valbuena, og skoraði með skoti sem hafði viðkomu í Jóni Guðna á leiðinni í markið.
Randjelovic skoraði annað mark sitt og þriðja mark Olympiacos með góðu skoti utan vítateigs á 85. mínútu. Fjórum mínútum síðar skoraði Daniel Podence fjórða markið og stórsigur Olympiacos staðreynd.
Seinni leikurinn fer fram á heimavelli Krasnodar næsta þriðjudag.
Dinamo Zagreb er í góðum málum eftir 2-0 sigur á Rosenborg á heimavelli og Young Boys og Rauða stjarnan skildu jöfn, 2-2.
Meistaradeildin fjarlægur draumur fyrir Jón Guðna og félaga
