Harður árekstur á Þjórsárdalsvegi Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. ágúst 2019 10:49 Sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang. Vísir/vilhelm
Umferðarslys varð á Þjórsárdalsvegi, miðja vegu milli Gaukshöfða og Hjálparfoss, á ellefta tímanum í morgun. Tveir bílar lentu þar í árekstri en samtals voru sex manns í bílunum tveimur. Þrír voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík og þrír á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, allir með sjúkrabíl. Ekki er talið að neinn hafi slasast alvarlega í slysinu. Að minnsta kosti einn er talinn hafa hlotið beinbrot. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og brunavörnum Árnessýslu er líklega um erlenda ferðamenn að ræða. Lið frá slökkviliðsstöðinni í Árnesi var sent á vettvang þegar tilkynning barst um slysið, auk sjúkraflutningamanna og lögreglu. Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir í samtali við Vísi að slysið hafi ekki reynst jafn alvarlegt og leit út fyrir í fyrstu. Viðbragðsaðilar aðstoðuðu fólkið við að komast úr bílunum en ljóst þykir að áreksturinn hafi verið harður. Gaukshöfði er merktur inn á kortið hér fyrir neðan en slysið varð á Þjórsárdalsvegi austan við höfðann, áður en komið er að Hjálparfossi. Loka þurfti veginum um tíma en opnað hefur verið aftur fyrir umferð.Fréttin hefur verið uppfærð.
Samgönguslys Skeiða- og Gnúpverjahreppur Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira