Stórtónleikar til styrktar flóttafólki í Prikporti Sylvía Hall skrifar 9. ágúst 2019 20:48 Frá mótmælum á Austurvelli. Vísir/Vilhelm
Samtökin No Borders standa fyrir stórtónleikum á Prikinu á morgun þar sem margir vinsælustu tónlistarmenn landsins koma fram. Tónleikarnir fara fram í portinu við Prikið og hefjast klukkan 16 og standa til klukkan 21. Á tónleikunum koma fram Sturla Atlas, Birnir, Saga Nazari, Joey Christ, Alvia, Gróa, Cultural Cypher, Countess Malaise og JóiPé & Króli. Rebecca Lord verður kynnir á tónleikunum. Með tónleikunum er vakin athygli á stöðu flóttamanna og hælisleitenda hér á landi og brottvísunum þeirra mótmælt. Í yfirlýsingu frá aðstandendum tónleikanna segir að haldið verði áfram að mótmæla þeirri einangrun og aðskilnaðarstefnu sem flóttamenn á Íslandi eru beittir af hálfu yfirvalda. Þau vilji jafnframt eiga samtal við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra strax.Viktor Weisshappel„Fyrir hinu íslenska ríki eru þau kölluð hin pappíralausu. Þau eru hin raddlausu og hin andlitslausu. Það sem gerst hefur síðustu mánuði er allsherjar neitun á þessari hlutgervingu. Flóttafólk á Íslandi stóð upp og neitaði að láta hlutgera sig áfram,“ segir í yfirlýsingu samtakanna. Frítt verður inn á tónleikana en tekið verður á móti frjálsum framlögum sem renna óskert til starfsemi No Borders. Hér að neðan má lesa yfirlýsingu samtakanna í heild sinni: Fyrir hinu íslenska ríki eru þau kölluð hin pappíralausu. Þau eru hin raddlausu og hin andlitslausu.Það sem gerst hefur síðustu mánuði er allsherjar neitun á þessari hlutgervingu. Flóttafólk á Íslandi stóð upp og neitaði að láta hlutgera sig áfram.Í andófi gegn yfirvaldi er fyrsta skrefið að færa sig frá því að vera hlutur í eigu og augum þessa valds, í að verða manneskja, að verða gerandi, að verða frjáls í hugsun og anda.Flóttafólk og anarkistar söfnuðust saman viku eftir viku, dag eftir dag og settu fram skýrar kröfur. Svívirðilegum gjörðum íslenskra og vestrænna yfirvalda var mótmælt.Við höfum mótmælt á Keflavíkurflugvelli, hjá Útlendingastofnun, fyrir framan Alþingi og á götum Reykjavíkur. Systkini okkar mótmæla í hinu svokallaða Frakklandi og veita áframhaldandi fangelsun, þrælkun og fordæmingu fólks af afrískum og miðausturlenskum uppruna mótspyrnu. Við sækjum innblástur í hreyfingu þeirra og hugrekki.Við munum halda áfram að berjast gegn rasisma ríkisins.Við munum halda áfram að verja sæmd okkar.Við munum ekki hlýða yfirvaldinu vegna þess að það eina sem það hefur upp á sig er að svipting allra okkar réttinda.Kjörorð Íslands í dag þegar kemur að útlendingum eru: niðurlæging, misnotkun og brottvísun.Ísland, sem borgar milljarða til hernaðarrekstrar NATÓ sem herja vopna- og efnahagsstríð á landsvæðin sem fólk flýr.Ísland, sem er í stríði gegn innflytjendum, hér og nú.Við komum saman á laugardaginn til að fagna frelsinu sem felst í virku andófi, til að minna á að baráttan heldur áfram og til að fræða fólk um aðstæður flóttafólks á Íslandi.Við berjumst fyrir því að bundinn sé endi á þá einangrun og aðskilnaðarstefnu sem flóttamenn á Íslandi eru beitt af hálfu yfirvalda!Við berjumst ekki einungis fyrir pappírum fyrir alla, heldur gegn þessu kerfi sem býr til pappíralausa einstaklinga, sem býr til svokallaða ólöglega einstaklinga.Það er ljóst að innanríkisráðuneytið vill ekki breyta stefnu sinni þegar kemur að málum flóttafólks.Þegar þau breyta einhverju, gera þau það til skamms tíma og fyrir örfáa,líkt og sást í tilfelli barnanna sex sem fengu málið sitt til enduropnað eftir að þúsundir manna fylltu götur miðbæjar Reykjavíkur.Við viljum tala við Katrínu Jakobsdóttir, forsætisráðherra, núna strax!Við munum halda áfram að berjast þar til að landamæri verða að engu og yfirvaldið fellur um eigin græðgi.Fyrir öll þau sem berjast gegn kúgun, hér og annarsstaðar!Fyrir öll þau sem trúa því að engin manneskja sé ólögleg!Fyrir öll þau sem vita að barátta gegn rasisma í dag, er barátta gegn rasisma fyrri tíma og komandi tíma!Ekki fleiri brottvísanir!Ferða- og búsetufrelsi fyrir alla!Lifi barátta hinna frjálsu og villtu!
Flóttafólk á Íslandi Hælisleitendur Reykjavík Mest lesið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Tónlist Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Fleiri fréttir Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira