Smáhýsi sem Reykjavíkurborg hyggst byggja við Héðinsgötu hafa sætt nokkurri gagnrýni vegna staðsetningar. Smáhýsin eru ætluð heimilislausu fólki en lóðin er staðsett á milli AA fundarsala og áfangaheimilis fyrir fyrrum fíkla sem lokið hafa meðferð. Fyrrverandi fíklar hafa gagnrýnt staðsetninguna og telja beinlínis hættulegt fyrir þá að labba í gegnum smáhýsin þar sem neysla sé heimil.
Sjá einnig:„Fyrrverandi fíklar mótmæla staðsetningu smáhýsa fyrir heimilislausa“

„Það er akkúrat ekkert sem segir að hér verði einstaklingar í neyslu. Það hefur hvergi komið fram frá Reykjarvíkurborg, alls ekki. Við lofum engu um það og getum lítið gefið upp um það hvaða einstaklingar búa í hvaða húsum,“ sagði Heiða Björg Hilmarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Í kvöldfrétt Stöðvar2 sem sjá má hér að ofan bendir fréttamaður Heiðu á að fyrir aftan hana sé áfangaheimilið Draumasetrið þar sem fíklar eru á batavegi og að við hliðina á henni sé húsnæði þar sem AA fundir fari fram. Fyrrum fíklar hafi talað um að það sé beinlínis hættulegt fyrir þá að labba í gegnum Smáhýsin á leið sinn á AA fund. Aðspurð hvað Heiða hafi að segja um ummæli fyrrum fíkla segir hún:
„Við höfum góða reynslu af því að blanda saman hópum. Við gerum það víða í borginni, sérstaklega miðborginni þar sem flest rýmin okkar eru. Við sjáum það frekar sem kost að það sé stutt á AA fundi þar sem margir af okkar einstaklingum nýta sér þá frábæru þjónustu sem þar er í boði,“ sagði Heiða Björg.

Sjá einnig:„Hlusta eigi á raddir þeirra sem mótmæla lóðavali smáhýsa“
Heiða segir að hlustað hafi verið á gagnrýnisraddir en telur staðsetninguna þvert á móti heppilega.
„Hún er tímabundin og hérna verður eflaust eitthvað annað í framhaldinu en já ég myndi segja að þetta væri nokkuð heppileg staðsetning fyrir þennan hóp,“ sagði Heiða Björg.