Fyrr í mánuðinum voru nær allar eignir flugfélagsins WOW air seldar úr þrotabúi félagsins. Kaupandinn er sagður vera Oasis Aviation Group sem stýrt er af Michelle Ballarin, bandarískri athafnakonu.
Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra þrotabús WOW Air, sagði í samtali við fréttastofu í dag að efni kaupsamningsins sé trúnaðarmál og því geti hann ekki gefið upp hvernig greitt sé fyrir þrotabúið. Kröfufrestur í þrotabúið er til 3. ágúst og enn óljóst hver endanleg fjárhæð krafna verði. Það sem skili sér fari upp í forgangskröfur.
Kaupendur þrotbúsins funduðu með Isavia fyrir helgi
Páll Ágúst Ólafsson, lögmaður kaupanda þrotabúsins hefur ekki viljað gefa upp hver skjólstæðingur hans er. Oasis Aviaton Group sinnir leiguflugi frá Bandaríkjunum til Afríku og sérhæfir sig meðal annars í flutningi vopna. Páll ítrekaði í samtali við fréttastofu í dag að kaupandinn muni kynna sig rækilega fyrir landi og þjóð þegar nauðsynlegir fundir með stjórnvöldum og stofnunum, um flugrekstur og flugrekstrarleyfi hafa átt sér stað.Fram hefur komið að félagið sem keypti þrotabúið geti ekki eitt og sér orðið meirihlutaeigandi að nýju flugfélagi. Samkvæmt lögum þurfa aðrir aðilar, innan evrópska efnahagssvæðisins, að eiga að minnsta kosti 51%.
Framhaldið líklega kynnt í þessari viku
Fréttastofan hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að Ballarin hafi verið verið stödd hér á landi fyrir helgi. Samkvæmt upplýsingum frá Samgönguráðuneytinu hafa engir fundir verið haldnir þar eða með ráðherra vegna málsins og Samgöngustofa vildi hvorki játa því né neita að fundarhöld hefðu átt sér stað. Isavia staðfesti hins vegar að fundur hafi verið haldinn með kaupanda þrotabúsins fyrir helgi þar sem aðilar kynntu sig fyrir hvor öðrum.Samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að félagið muni kynni fyrirætlanir sínar með WOW air á næstunni, jafnvel í þessari viku.