Snekkjurokkaðar vinkonur á siglingu Þórarinn Þórarinsson skrifar 10. júlí 2019 08:30 Stefanía Helga, Anna Ingibjörg og Eva Kolbrún hafa í nógu að snúast, komnar með lag á Spotify og fram undan er Airwaves og fleiri spennandi molar í konfektkassa lífsins sem stendur þeim galopinn. Fréttablaðið/Stefán
Anna Ingibjörg, Stefanía Helga og Eva Kolbrún eru rúmlega tvítugar, vinkonur af Seltjarnarnesinu sem hafa þekkst síðan þær voru með bleyju, eins og þær orða það. Þær stofnuðu hljómsveitina Konfekt seint á síðasta ári og skömmu eftir að þær byrjuðu að semja eigin tónlist ákváðu þær að taka þátt í Músíktilraunum. Með svo góðum árangri að þær enduðu í 2. sæti í vor, spiluðu á Secret Solstice, munu troða upp á Airwaves í haust og fyrsta lagið þeirra, Hvernig sem fer, er komið á Spotify. „Við vorum mjög hissa þegar við náðum öðru sæti í Músíktilraunum,“ segir Eva Kolbrún og bætir við að þær hafi ekki búist við því að komast í úrslit. „Þetta var í fyrsta sinn sem við spiluðum opinberlega og síðan gekk þetta allt vonum framar og allt í einu vorum við á sviðinu í öðru sæti.“ Stelpurnar segja að strax í kjölfarið hafi komið verkefni sem þær hafði ekki órað fyrir. „Það var ótrúlega skemmtilegt að spila á Secret Solstice. Á svona stóru flottu sviði með frábærum listamönnum.“ Ekki skyggði heldur á gleðina að þær líta upp til margra sem komu fram á hátíðinni. „Það er til dæmis draumur að spila á sama sviði og Black Eyed Peas, risastórt band sem á fjöldann allan af lögum sem maður kann utan að þar sem tónlist þeirra var vinsæl þegar við vorum að alast upp.“Snekkju- og „indí“-bræðingur Tónlist Konfekts hefur verið lýst sem eins konar „indí-poppi“ eða „snekkjurokki“ þar sem grípandi stef og taktur grípa hlustendur. „Við vitum ekki alveg hvað snekkju-rokk er en þetta var notað til þess að lýsa tónlistinni okkar eftir Músíktilraunir,“ segir Eva Kolbrún. „Samkvæmt Google er þetta mjúkt rokk sem spilað var á snekkjum kringum 1980. Okkur finnst gaman að orðinu og þar sem það getur reynst erfitt að skilgreina eigin tónlist höfum við notað þetta.“ Konfekt stendur á grunni gamallar og traustrar vináttu en stelpurnar hafa fylgst að frá blautu barnsbeini. „Við ólumst allar upp á hinu víðfræga Seltjarnarnesi og vorum þar af leiðandi allar saman á leikskóla og síðan grunnskóla. „Stundum saman í bekk og stundum ekki,“ segir Eva Kolbrún. „Vorum líka allar saman í handbolta hjá Gróttu og þess má geta að þar eigum við líka 2. sæti. Á Íslandsmeistaramóti 6. flokks kvenna árið 2009.“Snemma beygist krókurinn Eva Kolbrún er trommuleikari hljómsveitarinnar en hún greip á sínum tíma í kjuðana vegna þess að ekki var pláss fyrir hana í harmonikunáminu sem freistaði hennar mest. Slagverk var annað val og þegar hún fór að spila á trommurnar varð ekki aftur snúið. Það má því segja að trommurnar hafi valið hana.“Airwaves er auðvitað mjög spennandi verkefni en það er búið að vera svo margt í gangi að við erum varla farnar að hugsa um það,” segja stelpurnar sem eru á fleygiferð og komnar á Spotify og aðrar tónlistarveitur með lagið Hvernig sem fer.Eva spilaði í tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi í ellefu ár þar sem hún spilaði fyrst með Stefaníu í lúðrasveit skólans. Anna Ingibjörg og Eva Kolbrún spiluðu síðan fyrst saman í hljómsveitinni Stelpur í stuði, þar sem Anna spilaði á gítar og söng. Stefanía byrjaði að spila á klarinett sem barn og kenndi sér sjálf á píanóið sem var á heimilinu. Síðar fékk hún gítar í jólagjöf, lærði á hann og er gítarleikari bandsins.Lítt gefnar fyrir dramað Stelpurnar segja Konfekt hafa orðið til þegar Eva og Stefanía voru farnar að sakna þess að spila saman. „Stefanía sneri sér þá að Önnu sem var byrjuð að semja alls konar lög á píanó í kjallaranum en hún er einmitt píanóleikari sveitarinnar.“ Þær segjast hafa byrjað með því að spila lög eftir aðra, ábreiður, en fljótt hafi orðið erfitt að sammælast um hvaða lög þær ættu að spila. „Þá fórum við að semja okkar eigin lög í staðinn,“ segir Eva Kolbrún. „Þegar við semjum lög kemur yfirleitt ein okkar með hugmynd sem við vinnum síðan úr saman. Textinn kemur oftast síðastur og þar á Anna stærstan hluta.“ Stelpurnar segja samstarfið hafa gengið vel hingað til og lítið sem ekkert um alvarlegan ágreining eins og oft vill verða í hljómsveitum náinna vina. „Við erum ekki alltaf sammála um allt en við þekkjum hver aðra svo vel að það verður ekkert stórmál. Svo erum við líka allar frekar tjillaðar týpur og ekki mikið fyrir dramað.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Fleiri fréttir Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Sjá meira