Kólumbía er komið áfram í átta liða úrslit Suður-Ameríkukeppninnar eftir 1-0 sigur á Katar á Estadio do Morumbi leikvanginum í Sao Paulo í kvöld.
Markalaust var í fyrri hálfleiknum og allt þangað til fjórum mínútum fyrir leikslok. Þá skallaði Duvan Zapata boltann í netið eftir glæsilega sendingu James Rodriguez.
Lokatölur urðu 1-0 sigur Kólumbíu sem eru því komnir áfram í átta liða úrslitin eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum.
Katar er hins vegar með eitt stig eftir jafntefli gegn Paragvæ í fyrstu umferðinni en Paragvæ og Argentína mætast í nótt.
Flautað verður til leiks klukkan 02.30 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

