Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 6,1 prósent á yfirstandandi ári og verður því 9.047 milljarðar króna samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands sem kynnir nýtt fasteignamat í dag.
Í tilkynningu Þjóðskrár segir að þessi hækkun sé mun minni en sú sem varð milli áranna 2017 og 2018 þegar heildarmat fasteigna í landinu hækkaði um 12,8 prósent.
„Fasteignamatið byggir á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2019. Það tekur gildi 31. desember 2019 og gildir fyrir árið 2020. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2019,“ segir í tilkynningu Þjóðskrár.
Hækkun fasteignamats íbúða er meiri á landsbyggðinni heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni hækkar fasteignamatið um 9,1 prósent og um fimm prósent á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignamat íbúða hækkar mest á Akranes þar sem það hækkar um 21,6 prósent.
Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 6,9 prósent á landinu öllu; um 5,9 prósent á höfuðborgarsvæðinu en um 9,3 prósent á landsbyggðinni.
„Þjóðskrá Íslands hefur um árabil haldið úti verðsjá þar sem hægt er að skoða gangverð fasteigna. Verðsjáin sem var uppfærð árið 2017 hefur að geyma upplýsingar um bæði kaup- og leiguverð fyrir íbúðarhúsnæði og um kaupverð sumarhúsa. Verðsjáin er aðgengileg á heimasíðu Þjóðskrár Íslands eða beint á verdsja.skra.is.
Í verðsjánni er hægt að greina landið eftir landshlutum eða þeim matssvæðum sem fasteignamat Þjóðskrár Íslands byggir á. Þannig má með einföldum hætti sjá hvernig verðþróun hefur verið á ákveðnu svæði út frá fyrirliggjandi kaup- eða leigusamningum.
Langflestar fasteignir eru endurmetnar árlega út frá nýjustu matsforsendum en eins og fyrr segir byggja þær meðal annar á þinglýstum kaupsamningum. Þetta á við um íbúðarhúsnæði og sumarhús en atvinnuhúsnæði er metið samkvæmt tekjumati,“ segir í tilkynningu Þjóðskrár en nánari upplýsingar um fasteignamat næsta árs má nálgast á vefsíðu stofnunarinnar.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Fasteignamat hækkar um 6,1 prósent
Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar

Mest lesið

Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið
Viðskipti innlent

Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu
Viðskipti innlent

Bjartara yfir við opnun markaða
Viðskipti erlent


Truflanir í heimabönkum vegna bilunar hjá Reiknistofu bankanna
Viðskipti innlent

Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn
Viðskipti erlent

Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Hækkanir í Kauphöllinni á ný
Viðskipti innlent

Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag
Viðskipti innlent