

Þroskaþjófur
Pffmmm… þroskaþjófur hvað?
Þetta var fyrir mörgum árum og er ég enn þann dag í dag að leika þetta hlutverk af og til, stundum og sjaldan. Fer eftir árstíðum og skapi.
Í morgun lá ég rænulaus í rúminu vegna flensu. Ég gat ekki verið til staðar og maðurinn minn farinn í vinnuna. Tvær dásamlegar skjátur, 3ja og 7 ára voru frammi. Í gegnum hurðina hlustaði ég á þessar skjátur klæða sig sjálfar (sem þær reyndar hafa alltaf náð að gera sjálfar), græja nestið sitt, íþróttaföt og lestrarbókin fór á sinn stað. Rétt fyrir klukkan átta skottuðust þær síðan út og kvöddu fárveika móður sína. Þær ætluðu bara að fá far hjá nágrannanum. Ég þurfti, þennan morgun ekki að lyfta litla putta.
Hvað?? Gerðist þetta bara?? Var hún með greitt hárið? Og bíddu, var yngri skottan í vettlingum? Og ég bara inn í rúmi?? Ég á ekki til orð (sagt á innsoginu).
Þá reikaði hugur minn að þessu orð. Þroskaþjófur.
Ég skal segja ykkur hvað þroskaþjófur er. En það er ekki grímuklæddur maður sem læðist inn um brotnar dyr að næturlagi og setur þroskann ykkar í krukku. (Gæti samt verið flott stöff í ævintýramynd).
Nei. Það er einfaldlega bara umhyggjusöm, ábyrgðarfull fyrirmyndar húsmóðir (eða faðir) með nokkur börn. Haldandi á tusku í annarri og símanum í hinni. Jafnvel með skikkju á bakinu sem stendur „ég get allt sjálf“.
Þegar ég hef haft lítinn tíma til að sinna börnunum mínum vegna anna, eða er með samviskubit yfir að hafa ekki verið til staðar fyrir þær í einhvern tíma, þá vaknar þjófurinn í mér. Þá fer hann að gera allt fyrir litlu englana sína til að sýna þeim ást og umhyggju.
Þjófurinn fer að rétta þeim skeið út í jógúrtið, en þær sitja samt hliðina á skúffunni. Finna föt fyrir þær á morgnana, reima skóna sem þær kunna alveg sjálfar. Hann fer að ganga frá eftir matinn og þessir litlu englar breytast í ósjálfbjarga prinsessur og mamman, sem vanalega er nú bara nokkuð vel stödd verður þreytt, örg og tuðar yfir af hverju þær geta ekki tekið til í herberginu sínu eða náð í hlutina sjálfar.
Hmmm….
Ég þekki konu sem þurfti að fara út af heimilinu alla virka daga (5 daga í senn) því hún var í endurhæfingu. Á meðan voru unglingsdrengirnir hennar heima með pabbanum. Hún sagði mér að eftir nokkrar vikur þá hefði hún horft upp á lötu unglingsdrengina sína, skipta um á rúmunum sjálfir, elda og ganga frá. Hún átti ekki til orð. Allt í einu þá fóru bara allir að gera sitt. Alveg aleinir. Og engin mamma? Hún var mjög hissa skal ég segja ykkur.
Þroskaþjófur hefur mörg einkenni. Svona eins og með sjúkdóma. Þroskaþjófurinn er líka á mörgum stigum. Fjórða stigs þroskaþjófur hefur alveg lent í því að þvo þvotta af fullorðnum börnum sínum, sækir um vinnu fyrir fullorðin börn sín, klæðir fermingabörn í sokkana sína, lærir fyrir barnið eða reddar þeim úr vandamálum með því að kaupa eitthvað eða semja.
Ef fjórða stigs þroskaþjófur fær að blómstra, þá enda börnin gjarnan á því að vera vanvirk og geta ekki bjargað sér sjálf. Þau fá ekki hugrekkið eða sjálfstraustið til að gera það sem þarf að gera þegar út í lífið er komið. Svo oft á tíðum, klóra fjórða stigs þroskaþjófar sér í hausnum og skilja ekki af hverju barnið plummar sig ekki í lífinu.
Ég er viss um að í morgun löbbuðu tvær ungar dömur út í lífið með bros á vör og hjartað fullt af sjálfstrausti. Tilfinningin að geta eitthvað sjálfur og fá áskorun og sigra, er ómetanleg. Hún hjálpar okkur að þroskast, blómstra og styrkjast.
Ég mun, án efa, þurfa að fylgjast með þessum dömum mínum sem skokkuðu út í morgun, byrja með strákum eða stelpum sem ég hefði ekki valið. Ég mun þurfa að fylgjast með þeim í ástarsorg, í stríðni og fá höfnun í vinnu jafnvel. Ég mun þurfa að horfa upp á börnin mín í sársauka, gremju og reiði. Ef ég ætla að leyfa þeim að þroskast, þá verð ég að svæfa þroskaþjófinn og leyfa þeim að lifa. Ég verð að horfa upp á þær detta (kannski ekki mjög hátt), lenda í drama, kanna hættur, taka slæmar ákvarðanir án þess að ég segi þeim hvaða ákvarðanir þær eigi að taka, fara út af brautinni, gera mistök…. því annars ná þær ekki þroskanum sem felst í hverju skrefi barns.
Fyrir mér liggur þetta í þunnri línu umhyggju og stjórnsemi. Við viljum öll það besta fyrir börnin okkar. Stundum vitum við samt ekki hvað er best fyrir þau. Við bara höldum að við vitum það.
Stundum þurfum við að hjálpa. Og það liggur svo mikil fegurð í því að sjá foreldra sem styðja börnin sín. Aðstoða þau. Vera til staðar. Ég ætla sko ekki að sverta það. En það er einhver furðu óljós lína þarna á milli. Á einhverjum tímapunkti, hættum við að vera hjálpsöm og verðum stjórnsöm. Þar poppar þroskaþjófurinn upp.
Þessar umræddu skjátur, kenndu mér margt í morgun og minntu mig á orð konunnar sem ég heyrði fyrir mörgum árum. Ég ætla svæfa þroskaþjófinn minn í dag og minna mig á þessi aldrei of oft sögðu orð: Lifum og leyfum öðrum að lifa.
Höfundur er lífsleiknikennari, heilsuráðgjafi og sérlegur áhugamaður um mannlegt eðli. Pistillinn birtist fyrst á Facebook-síðu höfundar.
Skoðun

Lík brennd í Grafarvogi
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er handahlaup valdeflandi?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Á jaðrinum með Jesú
Daníel Ágúst Gautason skrifar

Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Gervigreindin beisluð
Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar

Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn
Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar

Geislameðferð sem lífsbjörg
Ingibjörg Isaksen skrifar

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Stöðvum helvíti á jörðu
Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Hversu mikið er nóg?
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Til þeirra sem fagna
Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifar

Að semja er ekki veikleiki – það er forsenda lýðræðis
Elliði Vignisson skrifar

Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sumar og sól – en ekki alltaf sátt í sálinni
Ellen Calmon skrifar

Að flokka hver vinnur og hver tapar
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi
Jón Kaldal skrifar

Má berja blaðamenn?
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar