Skemmtigarður um örkina hans Nóa skemmdist í flóði Kjartan Kjartansson skrifar 25. maí 2019 14:52 Gestir virða fyrir sér viðarörkina sem á að vera eftirl´king af örkinni hans Nóa í Williamstown í Kentucky. AP/John Minchillo
Eigendur kristilegs skemmtigarðs í Kentucky í Bandaríkjunum hafa stefnt tryggingafyrirtæki sínu til að krefjast bóta vegna skemmda sem urðu á garðinum í flóðum eftir úrhellisrigningar. Helsta aðdráttarafl skemmtigarðsins er 155 metra löng eftirlíking af örkinni hans Nóa. Skemmdirnar urðu á vegi í garðinum þegar aurskriður féllu á hann í miklu úrhelli árið 2017 og aftur í fyrra. Vegurinn hefur síðan verið lagfærður en tryggingarfyrirtækið neitar að bæta tjónið, að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar. Eigendur skemmtigarðsins krefjast tæplega milljónar dollara, jafnvirði um 124 milljóna íslenskra króna. Arkarfundurinn (e. Ark Encounter) opnaði árið 2016 og er örkin sjálf þekktasti sýningargripurinn. Hún skemmdist ekki í flóðunum. Í Biblíusögunni bjargaði maður að nafni Nói dýrum jarðarinnar frá hamfaraflóði guðs sem vildi með því refsa mannkyninu. Samtökin sem reka skemmtigarðinn aðhyllast svokallað sköpunarkenningu um að jörðin sé aðeins nokkur þúsund ára gömul. Samkvæmt stofnanda þeirra reikuðu risaeðlur um jörðina í tíð mannkynsins. Í raun dóu síðustu risaeðlurnar út fyrir um 66 milljónum ára. Mannkynið kom hins vegar aðeins til sögunnar á síðustu tvö hundruð þúsund árunum.
Bandaríkin Trúmál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira