Nokkrir höfðu á orði að á fyrri æfingunni hefði vantað stuðning við söng Klemens Nikulássonar Hannigan, annars af söngvurum Hatara, á sviði. Var búið að bæta úr því að mati fræðinganna sem fylgdust með æfingu Hatara í gær.
Þá söknuðu þeir sleggjunnar sem trommari Hatara, Einar Hrafn Stefánsson, hafði notað í forkeppninni á Íslandi. Notaðist Einar við svipur á fyrri æfingunni en þeim var skipt út fyrir annarskonar sleggju/priks á seinni æfingunni.
Fræðingarnir, þar á meðal Matt Fredericks hjá ESC Younited, voru ánægðir með að sjá þá breytingu á atriðinu, um væri að ræða framför en þó hefði Matt vilja sjá Einar sveifla sleggjunni með sama móti og hann gerði á Íslandi.


„Pabbi minn sagði að honum væri sama hvernig hann myndi deyja, svo lengi sem hann yrði ekki étinn lifandi af dýri. Ég segi það sama, nema ég vona að ég verði ekki fyrir barðinu á Hatara,“ sagði félagi Matt og hlógu þeir félagar dátt.
En Einar lenti hins vegar í vandræðum með sleggjuna sem hann notaði í gær því svo virðist sem annar endi hennar hafi brotnað af henni. Ef fylgst var með framvindu sleggjumálsins á Instagram-reikningi Ríkisútvarpsins kom í ljós að starfsmenn Ríkisútvarpsins unnu hörðum höndum að því að „föndra“ þessa sleggju í höllinni þar sem hátíðin fer fram.
Phil Colclough, hjá One Europe, fagnaði því að sleggjan væri komin aftur en viðurkenndi að hafa hlegið þegar annar endi hennar virðist hafa liðast af henni í hamaganginum á sviðinu.
Colclough segir blaðamenn ekki endilega hafa áttað sig á þessu atriði en sagði það engu máli skipta fyrir Hatara-menn. Þeir væru að stefna að því að heilla áhorfendur og koma sér þannig í úrslitin.
Þegar hann varpar upp þeirri spurningu hvernig atriðið hefði litið út segir hann: „Nákvæmlega eins og þú hefði ímyndað þér það. Einstaklega ógnvekjandi fyrir hinn almenna áhorfanda.“

Colclough bendir þó á að Hatari muni fá harða samkeppni frá Portúgal þegar kemur að umtalaðasta atriðinu. Þar er á ferðinni Conan Osiris með lagið Telemóveis. Verður Portúgalinn á fyrra undankvöldi Eurovision í Ísrael ásamt Hatara.
Osiris nýtur þar aðstoðar annars manns þar sem þeir fara mikinn með afar sérstæðum danshreyfingum á sviði. Sjón er sögu ríkari.