Chelsea náði í mikilvægt útivallarmark gegn Eintracht Frankfurt en undanúrslitaeinvígi liðanna í Evrópudeildinni er þó enn jafnt eftir fyrri leikinn í Þýskalandi.
Luka Jovic kom heimamönnum í Frankfurt yfir á 23. mínútu með frábæru skoti eftir fyrirgjöf Filip Kostic. Gestirnir náðu þó að jafna metin þegar Pedro þrumaði boltanum í marknetið rétt fyrir hálfleik.
David Luiz komst nálægt því að tryggja Chelsea sigurinn en aukaspyrna hans fór í slána.
Það vakti athygli að Eden Hazard var ekki í byrjunarliði Chelsea en Maurizio Sarri sagðist vera að hvíla Hazard vegna álags. Sarri stóðst freistinguna að setja Hazard inná þegar Chelsea átti í erfiðleikum í upphafi leiks og var verðlaunað fyrir því Chelsea liðið átti mjög góðan leik eftir mark Frankfurt.
Chelsea átti sextán skot á markið og finnst stuðningsmönnum þeirra líklega að Chelsea hefði átt sigurinn skilið, en markið kom ekki.
Chelsea fær seinni leikinn á heimavelli sínum og þarf þá bara að vinna þann leik til þess að komast í úrslitaleikinn.
Frankfurt hélt aftur af Chelsea
