Byrjuðu þriðju úrslitakeppnina í röð á tapi á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2019 15:00 Nú reynir á Birnu Valgerði Benónýsdóttur og félaga í Keflavíkurliðinu. Vísir/Vilhelm
Kvennalið Keflavíkur er lent 1-0 undir á móti Stjörnunni í undanúrslitum Domino´s deildar kvenna í körfubolta en Keflavíkurstelpurnar ættu að vera farnar að þekkja þá stöðu mjög vel. Þetta er þriðja úrslitakeppnin í röð þar sem Keflavík tapar fyrsta leiknum á heimavelli. Það gerðist einnig á móti Skallagrími 2017 og á móti Val í fyrra. Keflavík sló Skallagrímsliðið út eftir oddaleik fyrir tveimur árum en í fyrra varð liðið að sætta sig að detta út fyrir Val eftir að hafa í framhaldinu lent 2-0 undir í einvíginu. Þetta þarf ekki að boða slæma hluti því í síðustu tvö skipti sem Keflavíkurkonur hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn (2013 og 2017) þá hafa þær byrjað úrslitakeppnina á tapi á heimavelli. Í báðum þeim skiptum þá sóttu Keflavíkurkonur sigur á útivöll í öðrum leiknum og komust síðan í úrslitaeinvígið eftir sigur í oddaleik á heimavelli. Þetta er samt að verða svolítið skrýtin hefð hjá kvennaliði Keflavíkur að byrja úrslitakeppnina svona illa. Í raun hafa Keflavíkurkonur tapað fyrsta leik á heimavelli í úrslitakeppnin fimm sinnum frá og með árinu 2012. Sex heimaleikir og fimm töp eins og sjá má hér fyrir neðan. Keflavík bíður líka enn eftir fyrsta sigrinum í úrslitakeppnunum tveimur því karlalið Keflavík tapaði öllum þremur leikjum sínum í átta liða úrslitunum á móti KR. Keflavíkurliðin eru því 0-4 eins og er í úrslitakeppnum Domino´s deildanna 2019. Næsti leikurinn í einvígi Keflavíkur og Stjörnunnar í undanúrslitum kvenna verður í Garðabæ á sunnudaginn kemur. Keflavíkurkonur þurfa þar ekkert nema sigur ef þær ætla sér eitthvað í úrslitakeppninni í ár.Síðustu úrslitakeppnir þar sem Keflavíkurkonur hafa spilað fyrsta leik á heimavelli: 2019 - 8 stiga tap fyrir Stjörnunni (70-78) - ??? 2018 - 11 stiga tap fyrir Val (77-88) - Komst ekki í úrslitaeinvígið 2017 - 2 stiga tap fyrir Skallagrími (68-70) - Íslandsmeistari2015 - 31 stigs sigur á Haukum (82-51) - Silfurverðlaun 2013 - 10 stiga tap fyrir Val (53-64) - Íslandsmeistari 2012 - 9 stiga tap fyrir Haukum (54-63) - Komst ekki í úrslitaeinvígið
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira