Höfðu hendur í hári innbrotsþjófa í Kópavogi með því að rekja fótspor þeirra Birgir Olgeirsson skrifar 25. mars 2019 15:44 Annar þeirra var sakleysið uppmálað þegar lögreglan ræddi við hann. Vísir/Vilhelm
Tveir innbrotsþjófar voru handteknir í Kópavogi á laugardag eftir að tilkynnt var um innbrot í nýbyggingu í bænum. Á vettvangi og í nágrenni hans var ekki á miklu að byggja og þjófarnir hvergi sjáanlegir, en þó mátti sjá einhver skóför og hjólför að auki. Það var þó nóg til þess að lögreglumenn, sem sinntu útkallinu, komust á sporið, en það leiddi þá að íbúð annars staðar í bænum. Þar fyrir utan stóð bifreið, sem hafði geyma þýfið, en í íbúðinni voru tveir menn, annar á þrítugsaldri og hinn á fimmtugsaldri, og voru báðir handteknir í þágu rannsóknar málsins. Annar þeirra, húsráðandinn, var sakleysið uppmálað þegar spurt var út í innbrotið og hvort hann hann hefði eitthvað misjafnt að geyma á heimilinu. Ekki reyndust svör hans sannleikanum samkvæm því í íbúðinni fannst talvert af fíkniefnum, sem lögreglan lagði hald á. Mennirnir játuðu báðir sök við yfirheyrslu á lögreglustöð, en að því loknu var hinum stolnu munum komið aftur í réttar hendur. Mestmegnis voru þetta verkfæri, en þjófnaðurinn er sagður mjög bagalegur fyrir eigandann sem hefði lítið komist áfram við framkvæmdirnar án þeirra.
Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira