Óttast að ungmenni hreyfi sig minna með seinni klukku Kjartan Kjartansson skrifar 6. mars 2019 14:24 Barnalæknir óttast að börn hreyfi sig minna þegar birtustundum á vökutíma fækkar ef klukkunni verður seinkað um klukkustund. Vísir/Vilhelm
Hreyfing ungmenna gæti minnkað við fækkun bjartra stunda að skóla- og vinnudegi loknum ef klukkunni verður seinkað um klukkustund eins og lagt hefur verið til. Tryggvi Helgason, barnalæknir, gagnrýnir að lítið hafi verið fjallað um galla klukkubreytingarinnar í greinargerð starfshóps ráðherra. Í ritstjórnargrein í nýjasta tölublaði Læknablaðsins skrifar Tryggvi, sem er barnalæknir hjá Domus Medica og Heilsuskóla Barnaspítalans, gagnrýnir hann það sem hann segir einhliða framsetningu starfshóps heilbrigðisráðherra um klukkubreytingar. Hann telur hópinn fjalla vel og ítarlega um mögulega kosti þess að seinka klukkunni en lítið sé fjallað um neikvæð áhrif. Hópurinn lagði áherslu á að með því að seinka klukkunni þannig að hún félli betur að hnattstöðu Ísland væri hægt að breyta svefnvenjum fólks til hins betra, ekki síst ungmenna. Björtum morgnum fjölgaði sem bætti „samhengi morgunbirtu og líkamsklukku landsmanna“. Fullyrt er jafnframt í greinargerð sem hópurinn skilaði ráðherra að ávinningur af bjartari vetrarmorgnum séu meiri en neikvæð áhrif af rökkri síðdegis. Tryggvi segir í grein sinni að lítið sé gert úr neikvæðum afleiðingum þess að seinka klukkunni. Hann bendir á að líklegt sé að ungmenni hreyfi sig minna ef klukkunni verður seinkað um klukkustund. Gagnrýnendur klukkubreytingarinnar hafa bent á að birtustundum á vökutíma fólks fækki við það að seinka klukkunni. Gengið sé á birtustundir eftir skóla- og vinnu, tíma sem margir nýta til útiveru og hreyfingar. Í grein sinni segir Tryggvi að rannsóknir séu til sem bendi til þess að aukin dagsbirta í löndum sem taka upp sumartíma sé líkleg til að auka hreyfingu ungmenna. Nýleg innlend rannsókn hafi einnig fundið tengsl á milli dagsbirtu og hreyfingar unglinga á Íslandi, sérstaklega stúlkna. Tryggvi bendir á að enginn fulltrúi frá íþróttahreyfingunni hafi verið í hópnum en hún hafi ítrekað gert athugasemdir við fyrri frumvörp um klukkubreytingar. „Það sem svo gerist í kjölfarið er að þessi einhliða framsetning litar fjölmiðlaumræðuna. Það var ekki annað að heyra af umræðunni en að svefnvandi unglinga væri auðleyst mál með klukkubreytingu og í raun val um hvort við fræddum þjóðina um mikilvægi svefnsins eða bara einfaldlega breyttum klukkunni og þá væri sá vandi úr sögunni. Að það væri bara fínt að leysa of stuttan svefn hjá heilli þjóð svona,“ skrifar Tryggvi.Tryggvi Helgason barnalæknir.LæknablaðiðKostir og gallar séu kynntir á hlutlausan hátt Þrír valkostir um klukkuna eru nefndir í tillögu sem liggur nú inni í samráðsgátt stjórnvalda. Einn þeirra er að seinka klukkunni um klukkustund en hinir að halda henni óbreyttri en seinka annað hvort upphafi skóla eða fræða fólk um mikilvægi þess að fara fyrr að sofa. Tryggvi segir mikilvægt að við samráð sem þetta séu kostir og gallar breytingar kynntir á hlutlausan hátt til að það nýtist sem skyldi. „Á hvorn veginn sem ákvörðunin fellur er mikilvægt að fylgst verði með afleiðingunum og að yfirvöld setji sér mælikvarða á hvort sá árangur næst sem að er stefnt. Ekki er síður mikilvægt að mæla hverju er kostað til að sá árangur náist,“ segir hann.
Heilsa Klukkan á Íslandi Tengdar fréttir Breyting á klukkunni muni ekki fjölga birtustundum Vegna legu landsins á hárri breiddargráðu eru fáar birtustundir í boði á Íslandi yfir háveturinn og mun þeim ekki fjölga með breytingu á stillingu klukkunnar. 16. janúar 2019 07:17 „Klukkumálið“ ekki afgreitt á vorþingi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að hugsanlegar breytingar á klukkunni verði ekki afgreiddar á vorþingi. 17. janúar 2019 18:10 Tveir þriðju hlynntir klukkutíma seinkun Frestur til að skila umsögnum um tillögur að breyttum staðartíma á Íslandi rennur út eftir rúma viku. Hingað til eru flestir á því að seinka skuli klukkunni. Sumir leggja til tilraunaverkefni á Vestfjörðum eða að flýta klukkunni. 1. mars 2019 07:30 Vilja að skólinn byrji seinna á morgnana Margt var um manninn á fundi í MH um svefnvenjur og klukkubreytingar. 22. febrúar 2019 23:55 Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
Breyting á klukkunni muni ekki fjölga birtustundum Vegna legu landsins á hárri breiddargráðu eru fáar birtustundir í boði á Íslandi yfir háveturinn og mun þeim ekki fjölga með breytingu á stillingu klukkunnar. 16. janúar 2019 07:17
„Klukkumálið“ ekki afgreitt á vorþingi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að hugsanlegar breytingar á klukkunni verði ekki afgreiddar á vorþingi. 17. janúar 2019 18:10
Tveir þriðju hlynntir klukkutíma seinkun Frestur til að skila umsögnum um tillögur að breyttum staðartíma á Íslandi rennur út eftir rúma viku. Hingað til eru flestir á því að seinka skuli klukkunni. Sumir leggja til tilraunaverkefni á Vestfjörðum eða að flýta klukkunni. 1. mars 2019 07:30
Vilja að skólinn byrji seinna á morgnana Margt var um manninn á fundi í MH um svefnvenjur og klukkubreytingar. 22. febrúar 2019 23:55