Skólalóðin, bumbubolti og opinber stjórnsýsla Þórlindur Kjartansson skrifar 8. mars 2019 07:00 Ein fyrsta samskiptaregla sem krakkar læra er að það er ekki í lagi að hóta því að hætta og fara heim með boltann þegar eitthvað bjátar á í leik. Týpan sem hótar að skemma þannig leikinn fyrir öllum hinum þykir ekki sérlega góður pappír. Samt leynist í okkur öllum einhver angi af þeirri tilfinningu að það megi í hita leiksins segja „Ég á þetta, ég má þetta“. Það er samfélagslegur þrýstingur og vaxandi félagsþroski sem nær að halda þeirri hugsun kyrfilega í skefjum eftir því sem við eldumst. Þegar keppnisskapið nær tökum á manni er nefnilega ekki hægt að ætlast til þess að maður hegði sér algjörlega í samræmi við fyrirframgefnar leikreglur, eða sjái hlutina alltaf í réttu, hlutlausu og sanngjörnu ljósi. Þetta er auðvitað ástæðan fyrir því að krakkar sem hóta því að taka dótið sitt þegar eitthvað bjátar á læra fljótt að enginn nennir að leika með þeim—jafnvel þótt boltinn sé góður og dótið flott. Allir krakkarnir þurfa að skilja þá hugsun til botns að reglur leiksins sjálfs eru mikilvægari heldur en það hvort þessi eða hinn sigrar—og allir þurfa að læra að hafa þolinmæði fyrir smávægilegum árkestrum, svo lengi sem það fer ekki út í öfgar og skemmir leikinn.Bumbuboltinn Þessi grundvallaratriði halda gildi sínu óháð aldri og aðstæðum. Hópar miðaldra manna sem hittast og spila körfubolta einu sinni í viku þurfa að virða óskráð samkomulag um að menn láti ekki kappið hlaupa þannig með sig í gönur að það skapist hætta á meiðslum og slysum. Þar gilda, alveg eins og hjá krökkum á skólalóð, alls konar reglur um hvað sé óásættanleg hegðun—en umfram allt verður að finna hið gullna jafnvægi milli sigurviljans og leikgleðinnar. Leikmenn þurfa að gangast fúslega við því ef þeir brjóta á andstæðingi, viðurkenna sjálfir ef þeim verður á að taka of mörg skref með boltann og þar frameftir götunum. Í „bumbubolta“ og á skólalóð er því að jafnaði ekki gerð tilraun til þess að herma nákvæmlega eftir reglum í dæmdum leik. Í fótbolta án dómara er lítið reynt að leggja mat á rangstöðu. Í götukörfubolta hefur aldrei verið dæmd sóknarvilla og ef minnsti ágreiningur er um hver snerti síðast bolta á leiðinni útaf þá fær sóknin einfaldlega að halda boltanum. Hinar óskráðu reglur duga til þess að tryggja að flestir geta haft gaman af íþróttaiðkuninni og geta fengið smá útrás fyrir keppnisskap. Sá sem leggur í vana sinn að fussa og sveia þegar sóknin dæmir villu, rífst yfir innköstum eða brýtur harkalega á gömlum mönnum í hægum hraðaupphlaupum hættir fljótlega að fá boð um þátttöku í vinalegum körfuboltaleikjum. Óskráðu reglurnar fela í sér einhvers konar jafnvægi sem oftast gengur upp—en að sjálfsögðu kæmi aldrei til greina að einn tiltekinn leikmaður eða annað liðið fengi að skera úr um öll ágreiningsatriði. Engum íþróttamanni væri treystandi fyrir öðrum eins völdum.Dómaranum að kenna En þegar eitthvað er raunverulega í húfi gengur auðvitað ekki að treysta á að leikmennirnir sjálfir leysi úr því sem orkar tvímælis. Þess vegna eru „alvöru“ leikir ekki spilaðir nema í keppnisbúningum og með dómurum. Við slíkar aðstæður horfir veröldin öðruvísi við leikmönnunum. Þegar ábyrgðin á því að tryggja heiðarleika hefur flust af leikmönnunum sjálfum og yfir á dómarana þá þurfa leikmennirnir ekki að hugsa um neitt annað en að sigra. Ef þeir brjóta af sér þá er það ekki þeirra sjálfra að gangast við brotinu og andstæðingurinn beinir ekki reiði sinni að hinum brotlega heldur krefst þess að yfirvaldið grípi í taumana og refsi fyrir brotið. Þannig hefði Diego Maradona vitaskuld aldrei dottið í hug að viðurkenna að hann kýldi boltann yfir Peter Shilton á heimsmeistaramótinu í Argentínu 1986. Úr því dómarinn sá það ekki, þá var það ekki hendi. Og aldrei á milljón árum hefði Presnel Kimpembe leikmaður PSG viðurkennt að boltinn hefði farið í hendina á sér í leiknum gegn Manchester United í fyrrakvöld—og jafnvel þá hefði hann verið 100% sannfærður um að þar hefði bolti farið í hönd en ekki hönd í bolta. En dómarinn með aðstoð myndbandsupptöku tók ákvörðunina og þar við sat. Að halda að leikmennirnir sjálfir gætu komist að niðurstöðu um málið, með réttlæti og sannleiksást að leiðarljósi, væri augljóslega algjörlega fjarstæðukennd hugmynd.Blindur metnaður Þar með er ekki sagt að íþróttamenn sem ekki gangast við brotum sínum séu óvandaðir einstaklingar. Þeirra hlutverk er einfaldlega að hugsa um að sigra. Þannig verður leikurinn skemmtilegastur og bestur bæði fyrir iðkendur og áhorfendur. Svipuð sjónarmið hafa verið uppi á teningnum þegar réttarríkið var hannað. Í stað þess að treysta einstaklingum til þess að vera heiðarlegir og réttsýnir, þá var hannað kerfi sem gerir ráð fyrir því að jafnvel hið besta fólk blindist af metnaði fyrir þeim verkefnum sem þeim er treyst fyrir og enginn er gerður að dómara í eigin sök. Þess vegna leyfum við til dæmis ekki lögreglunni bæði að handtaka fólk og dæma það til refsingar. Við gerum einfaldlega ráð fyrir því að metnaður lögreglunnar til að koma algjörlega í veg fyrir glæpi sé líklegur til að stuðla að óhóflegum refsingum og ósanngjarnri málsmeðferð. Í því felst ekki að lögreglumenn séu verra fólk heldur en saksóknarar eða dómarar—heldur einfaldlega að allir séu þeir mannlegir og metnaðarfullir um að sinna sínum verkum af trúmennsku.Böðlast á borgurum Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, sagði við þingnefnd í vikunni að það þyrfti að passa upp á að hið opinbera böðlist ekki á borgurunum. Í því fólst auðvitað ekki ásökun um að embættismenn hafi sérstakan áhuga á því að böðlast á borgurunum—heldur einfaldlega viðurkenning á þeim aldagömlu sannindum að fólki er ómögulegt að leggja mat á það hvenær þeirra eigin tilgangur helgar meðölin sem öðrum er gert að innbyrða. Hið frjálsa spil sem ýmsar stofnanir hins opinbera hafa fengið gagnvart borgurum og fyrirtækjum býður heim stórkostlegri hættu á misbeitingu slíks valds og rangindum sem sett geta líf einstaklinga og rekstur fyrirtækja í langvarandi uppnám, eins og dæmi eru um. Engri stofnun og engum einstaklingi er treystandi til þess að hafa á eigin hendi vald til að setja reglur, rannsaka og refsa. Þetta vita krakkar á skólalóðum, karlar í bumbubolta—og þetta ættu kjörnir fulltrúar okkar borgaranna líka að hafa mjög ofarlega í huga þegar þeir setja stofnunum og embættismönnum valdmörk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þórlindur Kjartansson Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun