Fermingarterta skreytt með gulli Elín Albertsdóttir skrifar 26. febrúar 2019 16:00 Harpa Karin gullfalleg á fermingardaginn sinn. Kjólinn pantaði hún frá asos. Móðir hennar bakaði afar glæsilegar tertur af öllum stærðum. Til dæmis tvenns konar kransakökur.
Berglind Hreiðarsdóttir hefur haldið úti glæsilegri bloggsíðu þar sem sjá má gullfallegar tertur. Berglind bauð upp á gulltertu í fermingu dóttur sinnar og gefur hér uppskriftina að henni. Berglind er vinsæll bloggari en síðan hennar nefnist gotteri.is. Þar geta lesendur kynnst alls kyns girnilegum kökum en Berglind hefur haldið námskeið í kökugerð. "Næsta ferming hjá mér verður eftir fjögur ár og ég er strax farin að h Dóttir mín, Harpa Karin Hermannsdóttir, hafði líka ákveðnar skoðanir og við plönuðum þetta í jólafríinu hennar. Við vorum sem sagt mjög skipulagðar,“ segir Berglind. „Við pöntuðum til dæmis allar skreytingarnar á netinu og það er gott að vera tímanlega í því. Hún valdi síðan kjól í stíl sem við pöntuðum á asos. Harpa er núna að klára tíunda bekk í Varmárskóla og svo tekur alvaran við næsta vetur í framhaldsskóla,“ segir Berglind sem segist trúa því að næst þegar hún þarf að ferma verði tískan líklega orðin svolítið breytt. Berglind er mikill snillingur í kökubakstri og henni finnst ótrúlega skemmtilegt að halda veislu. Hún hlakkar til næstu fermingar. Fréttablaðið/Eyþór Fermingarterta með gulláferð (uppskriftin dugar fyrir 3 form, 6, 8 og 12'') Hér þarf að notast við smelluform og kökuplast (fæst í Allt í köku en einnig oft hægt að fá að kaupa í bakaríum). Eftir að kökubotnar hafa verið bakaðir þarf að klæða smelluformið að innan með kökuplasti og raða lögunum saman inni í því. Mikilvægt er að vera einnig með pappaspjöld fyrir tvo minni botnana og „burðarsúlur“.Brownie botnar 450 g smjör 285 g sykur 210 g púðursykur 6 egg 600 g suðusúkkulaði 1 tsk. salt 5 msk. bökunarkakó 225 g hveiti 7 msk. volgt vatn 4 tsk. vanilludropar Þeytið saman sykur (báðar tegundir) og smjör þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum saman við einu í einu og skafið á milli. Bræðið súkkulaðið og hrærið í blönduna. Setjið þurrefnin út í og loks vatnið og vanilludropana. Klæðið smelluform með bökunarpappír í botninn og spreyið PAM á hliðarnar. Skiptið deiginu á milli formanna svo allir botnarnir verði svipaðir á þykkt. Bakið í 175° heitum ofni í um 30-35 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum (ekki blautu deigi). Kælið og geymið þar til allt annað er tilbúið. Þarna setti Berglind upp nammibar eins og vinsælt er í fermingum. Svampbotnar 6 egg 570 g sykur 375 g hveiti 3 tsk. lyftiduft 300 ml vatn 150 g smjör Þeytið saman sykur og egg þar til létt og ljóst. Hitið saman vatn og smjör og leggið til hliðar. Blandið hveiti og lyftidufti saman við eggjablönduna og loks vatni og smjöri þegar bráðið. Skiptið niður í formin þrjú. Bakið við 200°C í um 15 mínútur eða þar til botnarnir verða gullinbrúnir. Kælið og skiptið síðan hverjum botni í tvennt með kökuskera, geymið þar til síðar.Jarðarberjamús 15 gelatínblöð 230 g sykur 1 kg jarðarber (maukuð í blandara) 5 msk. sítrónusafi 1 l rjómi (þeyttur) Leggið gelatínblöðin í bleyti í um 1 lítra af köldu vatni. Hitið saman maukuð berin, sítrónusafann og sykurinn þar til heitt (alls ekki sjóða). Bætið gelatíni saman við berjablönduna, hafið hana á vægum hita og hrærið vel á milli hvers blaðs. Hitið þar til vel blandað (um 5 mín.) og færið þá yfir í skál og leyfið að ná stofuhita. Því næst má kæla blönduna í um klukkustund en hræra vel í henni á milli. Um leið og blandan fer að verða hlaupkennd má blanda henni saman við þeytta rjómann með sleif og smyrja ofan á brownie botnana. Kælið og leyfið músinni að taka sig áður en haldið er áfram (a.m.k. 1 klst.). Þeyttur rjómi og samsetning 1 l þeyttur rjómi á milli svampbotnanna Stífþeytið rjómann og haldið því næst áfram með samsetninguna.Fyrri svampbotinn settur ofan á jarðarberjamúsina, því næst þeyttur rjóminn og loks seinni svampbotninn. Nú þarf að plasta kökurnar og kæla í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt. Smelluforminu er þá smeygt af og plastið fjarlægt. Kakan ætti að vera stíf og fín. Hér þarf að hjúpa hverja köku með þunnu lagi af hvítu smjörkremi, stafla henni með stoðum og skreyta að vild. Að þessu sinni notaði ég orkídeur, rósir, brúðarslör og litlar makkarónur (litaði ljósar makkarónur með gulldufti).
Birtist í Fréttablaðinu Fermingar Kökur og tertur Súkkulaðikaka Uppskriftir Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist RJ Mitte er látinn Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira