Hatari ruggar bátum í ísraelsku sjónvarpi Jakob Bjarnar skrifar 14. febrúar 2019 09:00 Stutt viðtal var við Matthías Tryggva í vinsælum ísraelskum sjónvarpsþætti þar sem hann greindi frá því að nokkur andstaða væri við þátttöku Íslands í Eurovision.
Hljómsveitin Hatari, sem komin er áfram í úrslitakeppni Söngvakeppni Ríkissjónvarpsins þar sem keppt verður um það hver verður fulltrúi Íslands í Eurovison, hefur þegar vakið mikla athygli í Ísrael. Daniel Hershkovitz, sjónvarpsmaður í Ísrael, segir það ekkert fara á milli mála. Hann benti Vísi því til staðfestingar á langt innslag um Eurovision í magasín-fréttaþættinum Hazinor á mánudaginn, en Daniel starfar fyrir hann. Þar var sjónum einkum beint að undankeppninni á Íslandi, nánar tiltekið að hljómsveitinni Hatari.Langt innslag um Hatara í ísraelsku sjónvarpi Þar er meðal annars farið yfir það hvað þeir sögðu í viðtali við Stundina, um að þeir litu svo á að um væri að ræða pólitískan gjörning af sinni hálfu. Heldur seig þá brúnin á hinum ísraelsku sjónvarpsmönnum en það lifnaði yfir þeim þegar greint var frá því að Hatari hafa skorað á Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísrael í glímu. Ef þeir tapa mun Ísrael eignast full yfirráð yfir Vestmannaeyjum en ef Hatari vinnur þá fái þeir ótvírætt umboð til að stofna einskonar BDSM-fríríki innan ísraelska ríkisins. Ísraelsku sjónvarpsmennirnir eru á því að lagið sé sérkennilegt og einn þeirra er á því að það sé gott.Klippa: Hatari í ísraelska sjónvarpinu Hazinor mun vera afar vinsæll þáttur, rúmlega milljón manns fylgjast með upplýsingum um hann á Facebooksíðu þáttarins. Hazinor er á Stöð 13, sem er næst stærsta sjónvarpsstöð í Ísrael. Þátturinn heitir The Tube eða Night Tube á ensku og hefur unnið ísraelsku sjónvarpsverðlaunin sem besti skemmtiþátturinn.Andstaðan kynnt ísraelsku sjónvarpsfólki Að sögn Matthíasar Tryggva Haraldssonar, annars söngvara Hatara, falaðist þátturinn eftir viðtali við hljómsveitina vegna þessa. Þeir töldu sig ekki vera í góðri aðstöðu til þess að mæta í sjónvarpsviðtal en sendu þess í stað stutt myndskeið til Ísrael ef það mætti gagn gera. Það er tekið upp í gömlum leikfimisal og á bak við þá Matthías og Klemens Hannigan má sjá karl og konu glíma.Klippa: Yfirlýsing Hatara til Ísraelsmanna Þátturinn birtir þó stutt símaviðtal við Matthías Tryggva, það fyrsta að sögn Daníels í ísraelskum fjölmiðlum, þar sem hann segir að upp hafi komið andstaða á Íslandi við þátttöku í Eurovision. Meðal annars hafi verið efnt til undirskriftasöfnunar þar sem hvatt er til þess að keppnin verði sniðgengin alfarið í mótmælaskyni vegna framgöngu ísraelskra stjórnvalda í garð Palestínu. Þeir í Hatara hafi hins vegar metið það svo að betra væri að koma slíkum skilaboðum á framfæri með þátttöku.Daniel Hershkovitz segist hafa verið fyrstur ísraelskra fjölmiðlamanna til að ná viðtali við meðlimi Hatara.Sjónvarpsmönnum þykir það orka tvímælis. En, einkum er það glímuáskorunin sem þeim finnst eftirtektarverð og í þættinum má sjá brot af glímu en það dæmi líkist meira grískri-rómanskri glímu en þeirri íslensku. Að sögn Daniels Hershkovitz er ólíklegt að innslagið sem Hatari tóku upp sérstaklega fyrir þáttinn muni rata á ísraelska skjái, því miður, í það minnsta ekki í þættinum Hazinor eftir hina ítarlegu umfjöllun á mánudaginn. Hann segir leitt að Netanyahu hafi ekki virt Hatari svars en þannig sé það nú með Netanyahu, maðurinn veiti fjölmiðlum sjaldan sem aldrei viðtal. En, hvað sem því líður sakar ekki að sjá hvað Hatara-menn vildu sagt hafa við ísraelska sjónvarpsáhorfendur. „Shalom Israel. Halló, Israel,“ segir Matthías á ensku. Vísir snaraði ávarpi Hatara lauslega yfir á íslensku. En, horfa má á það hér ofar. „Góðar kveðjur frá Íslandi. Það urðu okkur nokkur vonbrigði að frétta að Benjamin Netanyahu forsætisráðherra hafi ekki enn brugðist við fyrirspurnum ykkar. Við vonum að hann hafi hugrekki til að bera og taki áskorun okkar. Eða, eins og sagt er á Íslandi: Enginn heiðvirður maður reynir að koma sér undan áskorun í glímu. Við efumst ekki um að hann mun bregðast við þessari yfirlýsingu okkar.“Teknóhljómsveitin Hatari er farin að velgja einlægum Eurovisionaðdáendum undir uggum, svo vægt sé til orða tekið, jafnt innan lands sem utan.Mummi LúÞeir Matthías og Klemens lesa þá opinbera yfirlýsingu sína, eins og hún hefur verið sett fram í íslenskum fjölmiðlum:This is an official statement from award winning Icelandic anti-capitalist BDSM techno performers art group Hatari:We address our statement to Benjamin Netanyahu, prime minister of Israel and chairman of the Likud national-liberal movement.We members of Hatari hereby challenge you to a friendly match of traditional Icelandic trouser grip wrestling, or glíma. The wrestling match is to take place on Magen David Square in Tel Aviv on May 19th at the time of your choosing.Færsla frá Daniel á Facebook þar sem hann útskýrir málið í stuttu máli fyrir ísraelskum fylgjendum sínum.We will use traditional Icelandic trouser grip rules, illegal holds and unsportsmen-like conduct will lead to disqualifications and ensure drengskapur is upheld, a neutral UN sponsored referee will be present.If the chosen Hatari trouser grip wrestling champion wins this fair match of glíma, members of Hatari reserve the rigths to settle within your borders establishing the first ever Hatari sponsored liberal BDSM colony on the Mediterranian coast. If prime minister Benjamin Netanyahu wins the glíma the Israeli government will be given full political and economic control of South-Icelandic Island muncipality Vestmannaeyjar. Members of Hatari will ensure the successful removal of the islands current inhabitants.We await your swift response at our email-adress hatari@hatari.is or contact at Icelandicmusicnews.com. Which ever you or your staff prefers.Hatrið mun sigra, hate will prevail.
Eurovision Ísrael Tengdar fréttir Keppendur gera athugasemd við framkomu Hatara Skarphéðinn Guðmundsson hjá RÚV segir athugasemdir hafa verið gerðar. 12. febrúar 2019 12:20 Einlægir Eurovision-aðdáendur í öngum sínum vegna Hatara Útvarpsstjóri grátbeðinn um að grípa í taumana. 11. febrúar 2019 13:53 Segir klókt af RÚV að velja Hatara í forkeppni Eurovision Ætlar ekki afhenda RÚV undirskriftarlista gegn þátttöku í Eurovision Söngvakeppninni. 1. febrúar 2019 11:38 Mest lesið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Króli trúlofaður Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið Fleiri fréttir Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Króli trúlofaður Jólagjafir íslenskra vinnustaða Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Smakkaði skötu í fyrsta sinn undir eftirliti sérfræðinga Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Hafi ekki tekið þátt í herferð gegn Lively Einn frægasti krókódíll í heimi allur Myndaveisla: Rauð jól hjá Jökli í Kaleo „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Límdi fyrir munninn á öllum við borðið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Frægir fundu ástina 2024 „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Frægir fjölguðu sér árið 2024 Forsetinn og viðskiptavinir fengu forsmekk að Vigdísi Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Sjá meira
Keppendur gera athugasemd við framkomu Hatara Skarphéðinn Guðmundsson hjá RÚV segir athugasemdir hafa verið gerðar. 12. febrúar 2019 12:20
Einlægir Eurovision-aðdáendur í öngum sínum vegna Hatara Útvarpsstjóri grátbeðinn um að grípa í taumana. 11. febrúar 2019 13:53
Segir klókt af RÚV að velja Hatara í forkeppni Eurovision Ætlar ekki afhenda RÚV undirskriftarlista gegn þátttöku í Eurovision Söngvakeppninni. 1. febrúar 2019 11:38