Batt steypuklump við eiginkonu sína og kastaði henni fram af brú Sylvía Hall skrifar 3. febrúar 2019 10:38 Elizabeth var 28 ára þegar hún var myrt af eiginmanni sínum. GoFundMe/Fangelsið í Tarrant-sýslu
Rodolfo Arellano, 36 ára gamall maður frá Texas-fylki í Bandaríkjunum, játaði á miðvikudag að hafa orðið 28 ára eiginkonu sinni Elizabeth Pule Arrelano að bana árið 2016 með því að binda fimmtíu kílóa steypuklump við háls hennar og kasta henni fram af brú. People greinir frá. Það var móðir Elizabeth sem tilkynnti hvarf hennar til lögregluyfirvalda eftir að hún var hvergi sjáanleg á heimili foreldra sinna þar sem hún hafði gist aðfaranótt 16. apríl árið 2016. Kvöldið áður hafði hún farið út að skemmta sér með vinnufélögum og tilkynnti síðar vinkonu sinni að hún væri komin heil á höldnu heim til foreldra sinna eftir skemmtunina. Þegar hvarf Elizabeth var tilkynnt hafði lögreglan fundið lík hennar fyrr um daginn eftir að veiðimaður á svæðinu setti sig í samband við lögreglu eftir að hafa séð eitthvað falla af brúnni yfir vatnið Lake Worth í borginni Fort Worth. Sjónarvottar sögðust einnig hafa heyrt hróp þegar henni var kastað fram af brúnni. Eiginmaður hennar, Rodolfo, hafði neitað því að hafa orðið eiginkonu sinni að bana en líkt og fyrr sagði játaði hann morðið nú á miðvikudag eftir að sönnunargögn gáfu sterklega til kynna að hann væri sekur. Farsímagögn staðsettu hann nærri heimili tengdaforeldra sinna um svipað leyti og Elizabeth hvarf og þá fann lögregla einnig meiri steypu í garði hans við húsleit.
Bandaríkin Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira