VG fær grátbroslegar afmæliskveðjur frá Össuri Jakob Bjarnar skrifar 7. febrúar 2019 14:19 Össur skemmtir sér konunglega við að sjá fyrir sér gömlu klofningsmennina í VG klappa Milband lof í lófa.
VG fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu. Víst er að flokkurinn er að mörgu leyti í þröngri stöðu og Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, gerir sér mat úr því. Með miklum tilþrifum. Eiginlega verður ekki annað sagt en hann dragi flokkinn sundur og saman í nöpru háði að hætti hússins. Össur birtir gáskafullan pistil sinn á Facebooksíðu sinni og hefur hann þegar vakið mikla athygi. Hann rifjar upp að þegar Samfylkingin var stofnuð hafi það verið söguleg tilraun til að sameina jafnaðarmenn. Allir vinstriflokkar tóku þátt af heilum hug undir forystu formanns Alþýðubandalagsins, Margrétar Frímannsdóttur, sem áður hafði unnið Steingrím J. Sigfússon í formannslag þar á bæ árið 1995.Iðka róttæka vinstri stefnu sína með Engeyjarættinni „Nokkrir gamlir kommar og harðsnúnir sósíalistar lengst til vinstri klufu sig hins vegar frá á lokametrunum.Þeir fóru og stofnuðu VG, sem í dag iðkar róttæka vinstri stefnu með því að stýra Íslandi með Engeyjarættinni og Sjálfstæðisflokknum,“ skrifar Össur og heldur miskunnarlaus áfram sögulegri greiningu sinni: „Klofningsliðið voru karlar einsog Hjörleifur Guttormsson, Ragnar Arnalds, og Steingrímur Joð. Í byrjun var Svavar opinberlega með Samfó en þegar fararsnið rann á Hjörleifi og Grími sást undir iljar honum. Ögmundur var frá upphafi á móti sameiningunni (einsog Hjörleifur) og kaus að taka þátt í stofnun VG. Ögmundur, sem þá var formaður BSRB, var raunar ein helsta ástæðan fyrir velgengi VG lengi framan af.“Össuri þykir merkilegt að heiðursgestur á 20 ára afmælishátíð VG sé Ed Miliband, sem er þekktur fyrir eitthvað allt annað en lagt var upp með við stofnun VG.gettyÖssur segir að klofningsmenn hafi verið mjög skýrir á því af hverju þeir vildu ekki taka þátt í sameiningu vinstri vængsins: Töldu ómögulegt að vera í flokki með fólki sem studdi Evrópusambandið, vildi að Ísland yrði áfram í Nató, og margir þar að auki mengaðir af Blairisma breska Verkamannaflokksins.Og sérstakur heiðursgestur er … Ed Miliband Össur skemmtir sér vel við upprifjun á sögunni og þykir þar ýmislegt skjóta skökku við. Og heldur þykir honum gráglettin sú staðreynd að sérlegur heiðursgestur VG er Ed Miliband úr bresta Verkamannaflokknum. Það þykir Össuri kaldhæðið og að þarna megi greina uppgjör við söguna. „Ekki einasta var Ed Miliband nánasti ráðgjafi Gordon Brown, sem harðast lék okkur Íslendinga í Icesave.“„Ed Miliband er líka einhver harðasti talsmaður Evrópusambandsins sem finnst í Bretlandi og í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðild barðist hann gegn Brexit. Miliband er auk þessa ákafur stuðningsmaður Nató og hefur stutt öll stríð sem bandalagið hefur anað út í. Á tímum Tony Blair var hann þar að auki einn af mótorunum í hinni blairísku hugmyndasmiðju sem talin var lengst til hægri í breska Verkamannaflokknum.“Þingflokkur VG en Össur segir flokkinn nú stunda sína róttæku vinstri stefnu í sátt og samlyndi með Engeyjarættinni og Sjálfstæðisflokknum.fbl/ernirÖssur segir að í dag sé búið að bylta breska Verkamannaflokknum, honum er nú stjórnað nánast í fyrsta sinn í sögunni af róttækum sósíalistum sem tilheyra því sem Íslendingar myndu skilgreina sem „ysta vinstrið“.Kremlólógar í klemmu „Í ljósi þess að VG kallar sig enn „róttækan vinstri flokk“ þá er sögulega merkilegt að flokkurinn skuli ekki sækja sér heiðursgest í raðir þeirra. Þess í stað er boðið góðum Blairista sem er eindreginn talsmaður ESB, eindreginn stuðningsmaður Nató og var á móti Brexit.“ Össur slær lokatón í pistil sinn með því að senda heldur kaldar kveðjur: „Einhvern tíma hefðu kremlólógar einsog Svavar og Hjörleifur lesið afdráttarlaus skilaboð úr því. Væntanlega vísa þau til þeirrar framtíðar sem Katrín Jakobsdóttir vill stefna til og snjallir sagnfræðingar einsog bræður hennar gætu jafnvel lesið í þau uppgjör við þann upphaflega grundvöll sem VG var stofnað á,“ skrifar Össur og klikkir út með: „Ég efa samt ekki að Svavar, Ragnar Arnalds, Hjörleifur Guttormsson og Steingrímur Joð mæta til að klappa Miliband upp á laugardaginn. Gaman verður að sjá hvort Ögmundur mætir líka.“
Samfylkingin Vinstri græn Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Innlent Fleiri fréttir Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Sjá meira