Innantóm samfélagsmiðlaherferð auglýsti lúxus
Fyre Festival var haldin, og nær blásin af í sömu andrá, á Exuma-eyju í Bahama-eyjaklasanum í lok apríl árið 2017. Hátíðinni voru gerð greinargóð skil í fjölmiðlum á sínum tíma en þyrnum stráður aðdragandinn og skelfilegur aðbúnaður hátíðargesta vakti heimsathygli. Þannig líktu gestirnir ástandinu á eyjunni við Hungurleikana en miðar á hátíðina, sem var auglýst sem lúxustónlistarhátíð í umfangsmikilli en innantómri samfélagsmiðlaherferð, kostuðu hundruð þúsunda króna.Hér á eftir verður farið yfir nokkur af „svívirðilegustu“ atriðunum úr Netflix-heimildarmyndinni, þar eð sú á Hulu er ekki aðgengileg íslenskum áhorfendum. Myndin varpar ljósi á alvarlega misbresti við skipulagningu hátíðarinnar og ótrúlega viðskiptahætti skipuleggjenda. Stuðst er við samantektir bandarísku miðlanna Variety og The Week.
Þrjátíu milljónir fyrir eina færslu og hótanir heimamanna

Þá sökuðu skipuleggjendur Fyre Festival Bahamaeyjamenn úr starfsliði hátíðarinnar um að hafa hótað sér líkamsmeiðingum. Ráðgjafinn Marc Weinstein og viðburðastjórinn Andy King héldu þessu báðir fram í myndinni og sögðu mikla reiði hafa gripið um sig meðal heimamanna þegar þeir áttuðu sig á því að þeir ættu ekki von á greiðslu fyrir vinnu sína við hátíðina. King lýsti því til að mynda að hann hefði neyðst til að fá lánuð föt annars manns til að villa á sér heimildir, fela sig fyrir aftan þvagskál og húkka sér svo far með bíl í leyni til þess að komast óséður af eyjunni.
Munnmök í skiptum fyrir vatn
Téður King á svo heiðurinn að öðru sláandi atriði í myndinni sem hlotið hefur mikla dreifingu á samfélagsmiðlum. Þar segir King frá því að McFarland hafi grátbeðið sig um að veita tollstjóra eyjaklasans munnmök í stað þess að borga andvirði 21 milljónar íslenskra króna fyrir tollmeðferð á innfluttu vatni fyrir hátíðargesti. King sagðist hafa farið á fund tollstjórans, tilbúinn að „fórna sér fyrir málstaðinn“, þegar sá síðarnefndi sagðist myndu hreinlega leyfa þeim að leysa út vatnið og borga fyrir það síðar. Og King andaði léttar. Frásögnina má sjá í myndbandinu hér að neðan.Ayooooooo this Fyre Festival Documentary is WILDpic.twitter.com/HbCiJA5Dqf
— DDotOmen.com (@DDotOmenBlog) January 19, 2019
Nú hafa netverjar hins vegar tekið höndum saman, Rolle til aðstoðar. Þegar þetta er ritað hafa safnast yfir 160 þúsund dalir, eða um 19 milljónir króna, í GoFundMe-síðu sem Rolle deildi sjálf eftir útgáfu myndarinnar. Þá hefur rapparinn Ja Rule, einn skipuleggjenda Fyre Festival, beðið Rolle afsökunar.
Tengslin við Pablo Escobar
Áhættusækni McFarland, höfuðpaurs Fyre Festival, virðist jafnframt engin takmörk sett. Stuttu eftir að honum var sleppt úr fangelsi gegn tryggingu vegna ákæru í tengslum við Fyre Festival hleypti hann annarri svikamyllu af stokkunum, fyrirtækinu NYC VIP Access. Fyrirtækið herjaði á gesti Fyre Festival í gegnum tölvupóst og bauð þeim miða á ýmsa stórviðburði. Þar var þó einn hængur á – miðarnir voru, og höfðu aldrei verið, fáanlegir. Talið er að McFarland hafi grætt um 100 þúsund Bandaríkjadali á svindlinu.McFarland sagðist einnig hafa keypt eyjuna Norman‘s Cay, þar sem Fyre Festival átti upphaflega að fara fram. Hin meintu kaup notaði McFarland m.a. til að fá fjárfesta til að dæla fé í hátíðina en að síðustu kom í ljós að kaupin höfðu aldrei gengið í gegn. Þegar hinn raunverulegi eigandi eyjunnar frétti svo af því að tengsl hennar við eiturlyfjabaróninn Pablo Escobar væru notuð í auglýsingaherferð fyrir hátíðina dró hann eyjuna aftur til sín. Þar með þurftu skipuleggjendur að finna nýjan stað fyrir hátíðina, aðeins nokkrum mánuðum áður en átti að halda hana.
Sjá einnig: Skipuleggjendur Fyre Festival: „Við héldum að við værum tilbúnir en svo komu allir“
Þá mátti heyra lygilegar lýsingar hátíðargesta á ástandinu á Fyre Festival en eins og áður hefur komið fram var aðbúnaður hinn skelfilegasti. Þar bar líklega hæst frásögn ungs manns sem viðurkenndi að hafa, ásamt vinum sínum, lagt nærliggjandi tjöld í rúst svo að aðrir gestir myndu ekki búa sér næturstað í þeim. „Ég byrjaði bara að stinga göt og velta dýnum og félagi minn pissaði á nokkur rúm,“ sagði maðurinn í heimildarmyndinni.

Ja Rule segist svikinn og svekktur
Rapparinn Ja Rule, viðskiptafélagi McFarland og einn aðalskipuleggjenda Fyre Festival, hefur gagnrýnt framleiðendur beggja heimildarmynda. Hann lýsti yfir vanþóknun sinni á því að Netflix og Hulu hafi greitt fólki sem var viðriðið hátíðina fyrir að koma fram í myndunum, þ.e. McFarland sjálfum og framleiðslufyrirtækinu FuckJerry sem fór með markaðsmál Fyre Festival.Ja Rule, sem er áberandi í báðum heimildarmyndum, hélt því jafnframt fram á Twitter í gær að sjálfur myndi hann aldrei svindla á nokkrum manni.
„Ég var líka leikinn grátt, svikinn, blekktur, gabbaður, afvegaleiddur!!“ sagði Ja Rule í einni af færslum sínum.
I too was hustled, scammed, bamboozled, hood winked, lead astray!!!
— Ja Rule (@Ruleyork) January 20, 2019