Innlent

Ólafur áfrýjar dómnum til Landsréttar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips.
Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips. Vísir
Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi og forstöðumaður markaðsmála á alþjóðasviði Eimskips, hefur ákveðið að áfrýja tveggja mánaða dómi sem hann fékk í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu vegna málsins sem Ólafur sendi frá sér á sjötta tímanum.

Greint var frá því í dag að Ólafur hefði verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar, m.a. fyrir að taka hana hálstaki, umræddan dag.

Forsaga málsins er áralöng forræðisbarátta Ólafs Williams við barnsmóður sína. 

Yfirlýsing Ólafs í heild:

Vegna fréttar í dag vegna dómsmáls vil ég koma eftirfarandi á framfæri.

Friðhelgi heimilsins rofin.

Barnsmóðir mín  og sambýlismaður hennar ruddust inn á heimili mitt þann 16. júlí 2016 þegar barnið var í umgengni hjá mér samkvæmt úrskurði sýslumanns. Hún réðst á mig alveg tryllt eins og fram kemur í gögnum málsins og reyndi ég að verja mig og heimili mitt með að taka utan um hana og leggja í gólfið. Sambýlismaðurinn sló mig þá í bakið.

Barnsmóðir mín tók barnið og fór með það út gegn vilja barnsins eins og fram kemur í vitnisburði ótengds aðila sem stóð fyrir utan heimili mitt.

Rétt er að ég var dæmdur fyrir að reyna að verja mitt heimili en ég tók hana aldrei hálstaki eins og ég var sakfelldur fyrir. Hef ég tekið ákvörðun um að áfrýja þessum dómi.

Mál þetta hefur tekið mikið á mig og mína fjöldskyldu og vekur upp spurningar um hvort að í dómi þessum felist skilaboð um að það sé réttlætanlegt að ráðast inn á heimili fólks og nema barn á brott í skjóli lögreglu. Að mati lögreglu og ríkissaksóknara þá var ekki ástæða til að kæra barnsmóður mína og sambýlismann hennar fyrir húsbrot né brottnám barns með þeim rökum að almannahagsmunir kröfuðust þess ekki. Dæmi hver fyrir sig.

Ólafur William Hand

Fréttin hefur verið uppfærð.



Tengdar fréttir

Dæmdur fyrir ofbeldi gegn barnsmóður

Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi og forstöðumaður markaðsmála á alþjóðasviði Eimskips, hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í garð barnsmóður sinnar að viðstöddu barni þeirra í júlí 2016.

Tálmun er andlegt ofbeldi gegn barni

Barnið þarfnast beggja foreldra sinna. Enn fremur, það verður að gera allt til að tryggja það að báðir foreldrarnir gæti barnanna sinna, ali upp og eyði tíma með þeim líka. Alþjóðleg lög og sáttmálar staðfesta þetta ávallt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×