

Ekki metin er til fjár
Jólagjafastúss og stress
Hjá mörgum getur þetta gjafastúss snúist upp í heiftúðlega útgáfu af jólastressi. Væntingar gefenda og þiggjenda eru miklar. Svipurinn þegar pappírinn er rifinn af bögglunum þarf að endurspegla bæði undrun og ánægju—það er það sem stefnt er að. Foreldrar vilja sjá börnin sín ljóma upp af geðshræringu og rjúka svo í fang mömmu og pabba til þess að kreista þau og lýsa því yfir að þau séu sko best af öllum í heiminum. Og pabbarnir og mömmurnar vilja gefa hvort öðru gjafir sem framkalla gapandi undrun yfir hugmyndaauðgi og rausnarskap lífsförunautarins. Svo á makinn að leggja hendur í skaut sér og andvarpa „elsku besta, þetta er nú alltof mikið. Hvernig gastu vitað að mig langaði í þetta?“ Og góðir foreldrar kenna börnunum sínum að láta aldrei skína í vonbrigði. Öllum frændum og frænkum, öfum og ömmum, skal fagnað jafn innilega og hlýlega—hvort sem pakkarnir voru mjúkir eða harðir, dýrir eða billegir, fabrikkusmíðaðir eða handföndraðir. Það borgar sig að læra ungur sýndarþakklæti svo fólki finnist nú ekki leiðinlegt að gefa manni gjafir.
Hagfræði jólagjafa
Fyrir þá sem lært hafa hagfræði er jólagjafakvíðinn furðulegt fyrirbæri. Sú fræði kennir nefnilega þann sannleika að jóla- og afmælisgjafir séu í raun fáránlegar. Hinn skynsami maður, sem lætur rökhugsun ráða, áttar sig vitaskuld á þeirri gegndarlausu sóun á fjármunum og vinnuafli sem á sér stað þegar þorri þjóðarinnar hamast við það í heilan mánuð, og eyðir milljörðum króna, í að reyna að giska á það hvað geti mögulega „hitt í mark“ hjá öllum þeim sem til stendur að gleðja. Það má nefnilega teljast augljóst að það muni ekki takast nema í litlu broti tilvika að hitta á gjöf sem uppfyllir þau skilyrði að vera í fyrsta lagi eitthvað sem gleður, í öðru lagi eitthvað sem þiggjandinn hefði ekki getað fengið sér sjálfur—og í þriðja lagi að ekki hefði verið hagkvæmara að kaupa gjöfina á útsölu í janúar.
Eina vitræna niðurstaða hagfræðinnar er því sú að leggja umsvifalaust af allt þetta gjafasýsl og gefa bara peninga í staðinn sem þiggjandinn getur ráðstafað að eigin vild. Og ef við gerum ráð fyrir að fólk muni að jafnaði eyða nokkurn veginn sömu upphæð í gjöf fyrir þiggjandann eins og þiggjandinn eyðir í gjöf fyrir gefandann, þá myndi hinn skynsami hagfræðingur benda á að það fælist enginn annar óþarfa umsýslukostnaður í gjafastússinu. Miklu hagkvæmara væri einfaldlega að fólk keypti sér sjálft það sem það langaði í. Ef einhvers konar ójafnvægi er á milli aðila, þannig að annar gefur að jafnaði miklu dýrari gjöf en hinn, þá væri skynsamlegast að sá rausnarlegri (eða ríkari) millifærði einfaldlega yfir á hinn aðilann upphæð sem samsvarar því mismunandi verðmæti á gjöfum sem ella gengju þar á milli. Rómantískt, ekki satt?
Allt sem engu skiptir
En eins og í svo mörgu öðru þá útskýrir hagfræðin fullkomlega allt sem engu skiptir en skilur ekkert í því sem skiptir öllu máli. Alveg eins og segir í söngtextanum þá verður jólagjöfin í ár ekki metin til fjár—og skiptir þá ekki máli hvort gjöfin er „ég sjálf hvorki að hluta til né hálf“, góð bók, vönduð flík, skemmtilegt leikfang—eða fullkomlega misheppnuð tilraun til þess að stugga einhverjum út í nýtt áhugamál. Hið eina raunverulega vægi gjafarinnar er sá tími og sú tilfinning og væntumþykja sem fer í að hugsa um það hvernig maður geti glatt aðra manneskju. Það er sóunin sjálf sem er verðmætið.
Fögur sóun
Og ef sóunin er verðmætið í jólagjöfunum þá gildir það margfalt um jólakortin. Þegar ég ólst upp var sá siður mjög minnistæður að skrifa jólakort og opna þau sem borist höfðu á aðfangadagskvöld. Kortin voru þá undantekningarlaust handskrifuð og í þeim voru stundum sögð tíðindi af fólki, sem nú til dags hefðu líklega frést fyrir löngu á Facebook, og það var áhugavert að skoða þessi kort, sjá hversu ólíka rithönd fólk hafði, og hugsa með sér að allir þeir sem sendu kort hefðu gefið sér stutta stund og hugsað til viðtakandans—þótt ekki væri nema í þær fáu sekúndur sem það tók að hripa niður nafnið á umslagið og kvitta fyrir inni í korti.
Svo kom til sögunnar svokölluð mail-merge viðbót í hinu mjög svo hagkvæma forriti Excel. Þá gat fólk sent miklu fleiri jólakort á mun styttri tíma og þurfti ekki annað að gera en að líma adressuna framan á umslagið. Fljótlega fór svo að tíðkast að fólk léti prenta allt innvolsið í kortunum líka og senda öllum bara nákvæmlega sömu romsuna sem var prentuð í prentsmiðju og dælt út á einu augabragði og svo stimpluð í pósthúsinu. Þetta var auðvitað fyrirboði dauða jólakortsins hjá flestum enda kemur reglulega upp sú umræða að hin ýmsu ráðuneyti, fyrirtæki og stofnanir ættu bara að gefa andvirði jólakortabruðlsins til góðra málefna.
Þessi hagkvæmni bitnar auðvitað á innileikanum, því í stað þess að vita að sendandinn hafi hugsað til manns, þá getur maður yljað sér við þá tilhugsun að nafnið manns sé skráð í Excel skjal í tölvu og ekki hafi verið gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að fjarlægja það þetta árið.
Sælla að gefa
Alls konar sálfræðingar leggja mikla áherslu á þakklætið um þessar mundir, einkum af því að maður græðir víst svo mikið á því sjálfur að vera þakklátur öðrum. Það eru engin ný tíðindi. Pétur Sigurðsson ritstjóri lét eftir sig spakmælið að besta leiðin til að finna hamingjuna sé að gera aðra hamingjusama.
Og um jólin er örugglega hollt að reyna að njóta þess að hugsa til annarra, fara með brosi yfir lista af fólki sem maður er þakklátur fyrir, gefa sér tíma til þess að skrifa nokkur kort og hafa ekki áhyggjur af því hvort allar gjafirnar hitti í mark. Það er hugurinn sem gildir.
Skoðun

Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Málþóf og/eða lýðræði?
Elín Íris Fanndal skrifar

Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar?
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig
Birgir Dýrfjörð skrifar

Atvinnufrelsi!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Að mása eða fara í golf
Jón Pétur Zimsen skrifar

Leiðréttum kerfisbundið misrétti
Jónína Brynjólfsdóttir skrifar

Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sparnaðarráð fyrir ferðalagið
Svandís Edda Jónudóttir skrifar

Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín
Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar

Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram
Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar

Samráðsdagar á Kjalarnesi
Ævar Harðarson skrifar

Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að mása sig hása til að tefja
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar