Harmar að vera bendluð við „kannabis-kapítalisma“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. desember 2018 19:26
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og formaður velferðarnefndar, segir mikilvægi þingsályktunartillögu um notkun og ræktun kannibis í lækningaskyni vera ótvíræða, þrátt fyrir fjölda neikvæðra umsagna. Hún segir margar umsagnanna ekki vera á faglegum forsendum og harmar að vera bendluð við „kannabis-kapítalisma.“ Halldóra er fyrsti flutningsmaður tillögunnar sem kveður á um að heilbrigðisráðherra verði falið að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga sem heimili notkun og framleiðslu lyfjahamps. „Það eru náttúrlega búnar að koma margar neikvæðar umsagnir og ein sem var sérstaklega furðuleg frá heilsugæslunni en þar er verið að tala um einhverja bylgju áróðurs fyrir lögleiðingu kannabis og þau borin upp af hagsmunaaðilum sem hyggist græða á sölu og eitthvað svona. Þetta er ekki beint á faglegum forsendum þessi umsögn þannig að mér finnst voða leiðinlegt að sjá þetta þar sem er verið að bendla mig við einhvern kannabis-kapítalisma,“ segir Halldóra. Hún bætir við að einnig hafi borist ýmsar málefnalegri umsagnir sem eigi erindi við umræðuna. Hún bindur vonir við að þingsályktunartillagan verði tekin á dagskrá Alþingis fljótlega eftir áramót. Enn eigi eftir að koma gestir fyrir nefndina og vill Halldóra vill bjóða erlendum gestum með sérfræðiþekkingu að koma fyrir nefndina. „Í raun og veru þá er ég að leggja þetta fram til þess að hjálpa veiku fólki sem að kýs að nota kannabis að hjálpa veiku fólki sem að kýs að nýta sér eða nota kannabis til þess að auka sín lífsgæði. Þannig að þetta var mjög mikilvægt mál og mér finnst bara ljótt að við einhvern veginn stimplum þetta fólk sem glæpamenn,“ segir Halldóra.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira