Úthrópaður sem kattarmorðingi og ógeð
Júlíus Örn er ungur maður sem búsettur er ásamt konu sinni og Border Collie-tík á Ásbrú á Suðurnesjum. Þegar Vísir hitti Júlíus Örn var hann niðurbrotinn maður; hafði ekki sofið í tvo sólarhringa. Hann hafði, á leið sinni, komið við í lúgusjoppu N1 uppí Ártúnsbrekku og þar var æpt á hann og honum neitað um afgreiðslu: Kattarmorðingi, var æpt á hann! Ógeð!„Mannorð mitt er ein rjúkandi rúst. Ég hef starfað við dagróðra en er búinn að missa vinnuna vegna þessa,“ segir Júlíus Örn í samtali við Vísi.
Þetta á sér forsögu. Fyrir nokkru fór hroðalegt myndband í dreifingu á netinu sem vakti upp gríðarlega reiði. Þar má sjá mann nokkurn taka í blóðugan kött og hrista hann til. Þetta er kunningi Júlíusar, Jóhann Þór Arnarson. Hann sendi frá sér afsökunarbeiðni á Facebook-síðu sinni eftir að myndbandsbrotið fór sem eldur í sinu um netið og lýsti því yfir að þetta hafði verið verulega ósmekklegt grín af sinni hálfu.

Kötturinn hljóp fyrir bílinn
Júlíus Örn var ökumaður bílsins en þeir voru við þriðja mann, Alexander Eiríksson, að þvælast frá Hvaleyrarvatni um fjögurleytið að nóttu til. Hugmyndin var sú að spreyja Jóhann Þór bleikan og henda honum út í Hvaleyrarvatn, sem átti að vera einskonar gjörningur fyrir Snapchat-reikning Jóhanns. Þegar til kom var of kalt og ekkert varð af því. Þegar þeir voru svo að keyra fram hjá hesthúsum sem eru ofan Hafnarfjarðar hljóp köttur í veg fyrir bílinn.
Var mjög mótfallinn myndbandstökum
Félagar Júlíusar voru fullir og vitlausir og Jóhann Þór tók til við að taka upp myndbandsbrotið sem svo setti allt á annan endann. Júlíus Örn segir að sér hafi mislíkað það mjög, beðið Jóhann Þór um að hætta þessu en hann hafi tekið upp myndskeiðið og sagst ætla að skoða það seinna.„Hann ákvað að taka upp þetta ógeðslega myndband. Ég var búinn að segja honum að gera það ekki. En, hann sagðist ekki ætla að deila þessu. Og ég sagði honum að gera það ekki, vissi að allt yrði brjálað. Mér fannst þetta verulega illa gert,“ segir Júlíus Örn og vísar til þess að vilja hafa þetta í flimtingum.
Þeir hittu síðan lögregluna. „Ég var með mikið samviskubit og vildi tala við eigandann ef hann fyndist.“

Vilja „slátra helvítis ógeðinu“
Eftir að spurðist að Júlíus Örn hafi verið ökumaðurinn umræddur í þessu hroðalega myndbandsbroti sem vakið hefur svo mikla reiði hefur líflátshótunum rignt yfir hann. Og Júlíus sýnir blaðamanni dæmi um það, skilaboð sem hann hefur fengið. Þar er hann kallaður öllum illum nöfnum, svo sem „helvítis ógeð“ og „fkn sver ég það að ég mun finna þig litla draslið þitt og hreint út sagt slátra þér og mér er drull sama hvort eikkver lögfræðingur hringi í mig og what ever ef ég væri þú þá myndi ég bara fara að hætta að skrifa hér helvítis auminginn þinn“.
Er að hugsa um að flýja land
Júlíus Örn segist vera mikill dýravinur og það að hafa ekið á köttinn hafi reynst sér afar erfitt í sjálfu sér. Hótanirnar sem fylgdu hafa gert líf hans óbærilegt, sérstaklega hótanir sem snúa að því að gengið verði í skrokk móður hans. En, hún er alvarlega veik.„Ég get ekki tekið ábyrgð á því sem hann Jóhann gerir. Mér mislíkar það. En, ég er að fá hótanir og líflátshótanir, bæði á netinu og svo er hringt í mig. Menn eru að hóta því að drepa hundinn minn, ganga í skrokk á mömmu minni. Ég er búinn að ákveða það að láta mig hverfa yfir jólin. Er að íhuga að flýja bara land. Ég get ekki séð framá það að geta verið með fjölskyldunni yfir jól. Slík er heiftin og áreitið,“ segir Júlíus Örn.