Bréfið til Frans páfa komið í póst Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. desember 2018 15:09 Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra glaður í bragði að setja bréf til Frans páfa í póstkassann á Keflavíkurflugvelli. Aðsend
Snemma í morgun sendi Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra útprentað bréf til Fans páfa. Hann póstlagði bréfið á Keflavíkurflugvelli rétt áður hann steig um borð í flugvél til Póllands til að vera viðstaddur loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna. „Upphaflega var þetta einfaldlega hugleiðing sem ég skrifaði við eldhúsborðið eitt kvöld nú í vikunni eftir að fréttir bárust af ummælum Páfa í væntanlegri bók,“ segir Guðumundur Ingi. Frans páfi sagði í nýlegu viðtali vegna væntanlegrar bókar að samkynhneigð væri í tísku og þá hvatti hann presta til að standa við skírlífseiðinn. Hann sagðist einnig vera andsnúinn því að gera samkynhneigða karlmenn að prestum og samkynhneigðar konur að nunnum. Það væri ekkert pláss fyrir samkynhneigð í lífi presta og nunna. „Mér fundust þessi ummæli um að samkynhneigð væri tískufyrirbrigði vera með ólíkindum. Ég sagði að ef ég myndi skrifa páfa rafrænt bréf og setja það út í kosmósið frá Íslandi myndu fyrstu drög að því líta einhvern veginn svona út. Þá sá ég alls ekki fyrir mér að senda það til hans útprentað með bréfpósti,“ segir Guðmundur. Eftir að hann birti færslu um ummæli páfa rigndi yfir hann hvatningarskilaboðum þess efnis að hann skyldi þýða bréfið og senda það með pósti í Páfagarð. „Mér þótti svo vænt um að finna þennan mikla stuðning, þessa hvatningu og samstöðu að ég ákvað að slá til,“ segir Guðmundur. Í bréfinu til Frans páfa segir Guðmundur að hvorki kynhneigð né kynerund sé val. Það sama eigi við um allt hinsegin fólk. „Kynhneigð okkar er ekki tískufyrirbrigði sem við getum skipt út með nýju vorlínunnni. Við einfaldlega erum eins og við erum,“ ritar Guðmundur í bréfinu. Hann segir Frans páfa frá því að hann hafi eitt sinn hugleitt að gerast munkur þegar hann dvaldi í kaþólsku klaustri. „Ég veit að það að ganga í klaustur er nokkurra ára strangt lærdómsferli oig ég veit að það þarf að gera kröfur til þeirra sem ákveða að gerast kirkjunnar þjónar en það kemur kynhneigð ekkert við. Bara ekki neitt. Ég verð dapur að heyra að þú sem ég hef annars miklar mætur á sjáir ekkert rými fyrir hinsegin fólk á meðal presta, munka og nunna.“ Guðmundur segir að bréfið sé núna á leiðinni í Vatíkanið en hann sjálfur á leið til Póllands að ræða loftslagsmál. Bréf Guðmunds má lesa í heild sinni hér að neðan:Bréf Guðmundar Inga til Frans páfa.AðsendDear Francis,Sexuality is not a lifestyle. Sexuality is not a choice and neither is gender identity. It just is. The same is true of all queer people. Our sexuality is not a fashion which we exchange when the new spring collection is out. We simply are who we are.Dear Francis. I once considered becoming a monk when I was 21 years old and stayed in a Roman Catholic monastery. I know that joining a monastery is a demanding learning process that takes sacrifice and humility and I know that those who decide to become servants of the church need to pass muster. But that has nothing to do with sexuality. Absolutely nothing. And it makes me sad to hear that you, of whom I regard so highly, do not see any room for queer people among priests, monks and nuns.Dear Francis. The church is make weaker by excluding the contribution of queer people. The more diverse the people you employ, the greater chance your church has of fulfilling its role – to be the messenger of love and peace. It increases understanding within its walls.Dear Francis. A man in your powerful position influences people allover the world. Your words carry great weight. That incurs a great responsibility. I hope you see where you have gone astray. Best wishes.With kind regards from Iceland,Mummi
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Banksy opinberaður, enn einu sinni Erlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Lögreglustöðinni verði lokað verði ekki húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más „Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl“ Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Faðir um brunann á Stuðlum, uppgjör í undirheimum og forsendubrestur Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Sjá meira