Atletico Madrid tryggði sig áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og gott sem dæmdu Mónakó úr leik í Evrópu.
Mörk frá Koke og Antoine Griezmann á fyrsta hálftímanum gáfu heimamönnum í Madrid nokkuð þægilegan leik.
Radamel Falcao fékk upplagt tækifæri til þess að gera leikinn spennandi síðustu mínúturnar þegar Savic handlék boltann inni í eigin vítateig, fékk rautt spjald og Mónakó fékk vítaspyrnu.
Falcao fór á punktinn en vítaspyrnan hitti ekki á markrammann. Illa farið með frábært færi og leiknum lauk með 2-0 sigri.
Mónakó endar því að öllum líkindum á botni riðilsins og fær því ekki sæti í Evrópudeildinni.
Lokomotiv Moskva á enn möguleika á þriðja sætinu í D-riðli eftir 2-0 sigri á Galatasary. Bæði lið eiga ekki lengur möguleika á því að komast áfram í 16-liða úrslit.

