Rosenborg er úr leik í Evrópudeildinni eftir eins marks tap fyrir Celtic í B-riðli keppninnar í kvöld.
Möguleikar Rosenborg voru ekki miklir fyrir leikinn en fengu í heimsókn andstæðing sem hafði aðeins unnið tvo af síðustu 44 útileikjum sínum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Eina mark leiksins gerði Scott Sinclair á 42. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf James Forrest.
Celtic þarf aðseins eitt stig úr lokaumferðinni tl þess að tryggja sig áfram í 32-liða úrslitin.
Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan leikinn fyrir Zurich sem tapaði 2-1 fyrir AEK Larnaca í A riðli. Zurich var komið áfram í 32-liða úrslitin fyrir leiki dagsins.
Rosenborg úr leik
